Hvasst og víða rigning eða slydda sunnantil Atli Ísleifsson skrifar 23. janúar 2025 07:17 Hiti verður á bilinu núll til fimm stig sunnan- og vestantil, en minnkandi frost fyrir norðan og austan. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustan 10 til 18 metrum á sekúndu í dag, en heldur hægari norðanlands framan af degi.
Spáð er rigningu eða slyddu á sunnanverðu landinu, en úrkomuminna fyrir norðan. Á vef Veðurstofunnar segir að það verði núll til fimm stig sunnan- og vestantil, en minnkandi frost fyrir norðan og austan. Lægir og kólnar sunnanlands síðdegis með snjókomu en styttir upp þar í kvöld. „Á morgun verður breytileg átt 5-10 m/s, en suðaustan 10-18 norðanlands framan af degi og gengur í austan 8-13 austantil seinnipartinn. Það verður dálítil snjókoma eða slydda öðru hverju í flestum landshlutum, en úrkomuminnst verður á suðvesturhorninu. Hiti yfirleitt nálægt frostmarki, en frost 1 til 6 stig inn til landsins. Á laugardag verður breytileg átt 3-8, en norðvestan 5-13 á sunnan- og vestanverðu landinu síðdegis. Rigning eða slydda af og til um mest allt land. Hiti breytist lítið,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Austlæg átt 8-13 m/s á austurhelmingi landsins og snjókoma eða slydda með köflum. Hægari vindur og úrkomulaust vestantil, en sums staðar dálítil snjókoma þar um kvöldið. Frost 0 til 6 stig, en frostlaust við austurströndina. Á laugardag: Breytileg átt, víða á bilinu 5-13 m/s. Dálítil snjókoma eða él í flestum landshlutum. Vægt frost. Á sunnudag: Vestlæg eða breytileg átt 5-10 og snjókoma með köflum, en þurrt að mestu sunnanlands. Frost 2 til 8 stig. Á mánudag: Norðlæg átt og skýjað með köflum, en víða úrkomalaust. Herðir á frosti. Á þriðjudag: Norðlæg átt eða breytileg átt og stöku él, en bjartviðri sunnan heiða. Frost 3 til 13 stig, kaldast inn til landins. Á miðvikudag: Útlit fyrir breytilega átt. Dálítil él á norðanverðu landinu, en yfirleitt bjart sunnantil. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið Lofuðu Trump í Norður-Kóreustíl Erlent Bandaríkin beittu neitunarvaldinu gegn kröfu um vopnahlé Erlent Banna kennslubækur eftir konur í háskólum landsins Erlent „Það er erfitt að berjast fyrir eigin réttindum þegar maður er veikur“ Innlent Kourani sótti um náðun af heilbrigðisástæðum Innlent Um tvö hundruð á ári á gjörgæslu vegna lífshættulegrar sýkingar Innlent Raunvirði íbúða lækkar á ný Innlent Mótmælir breyttu fyrirkomulagi í nemendaráðskosningum Innlent „Hver ætlar að fylgjast með því að hann komi ekki til baka?“ Innlent Hundruð milljóna vanti: „Þetta er hreint misrétti“ Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir og svalri norðanátt beint til landsins Slydduél norðantil en þurrt og bjart sunnan heiða Kólnar í kvöld og allvíða næturfrost Kólnar þegar líður á vikuna Milt veður og víða væta Rigning með köflum víðast hvar Blautt víðast hvar Dálítil rigning og lægðir á sveimi Væta með köflum og dregur úr vindi Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Hvasst og samfelld rigning austast Má reikna með vatnavöxtum suðaustantil Rigning í dag Víðast hægur vindur og hiti að fimmtán stigum Rigning norðan- og austantil en bjart suðvestanlands Léttskýjað vestan- og sunnantil en blautara annars staðar Hiti að tuttugu stigum og hlýjast sunnantil Líkur á hellidembu, þrumum og eldingum suðvestantil Hlýtt og rakt loft yfir landinu Vindur á undanhaldi og hiti að tuttugu stigum Blæs hressilega af austri á landinu Gul viðvörun á Suðurlandi vegna hvassviðris Kröpp lægð stjórnar veðrinu næstu daga Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Litlar breytingar á hlaupi í Hvítá við Húsafell frá því í gær Skýjað, lítilsháttar væta og temmilega hlýtt Hiti að 21 stigi í dag Hiti að nítján stigum í dag en yfir tuttugu á morgun Hægviðri og hiti að nítján stigum Norðlæg átt og víðast hvar væta Sjá meira