Innlent

Rýmingum af­létt í Nes­kaup­stað en ekki Seyðis­firði

Bjarki Sigurðsson skrifar
Mynd frá Neskaupstað í morgun. Útlínur þriggja flóða úr Skágili, Nesgili og Bakkagili eru rissaðar gróflega með rauðu á myndina.
Mynd frá Neskaupstað í morgun. Útlínur þriggja flóða úr Skágili, Nesgili og Bakkagili eru rissaðar gróflega með rauðu á myndina. Veðurstofan

Rýmingum í Neskaupstað vegna snjóflóðahættu hefur verið aflétt. Enn er verið að fara yfir gögn og meta hvort aflétta eigi rýmingum á Seyðisfirði strax. Verkefnastjóri almannavarna á Austfjörðum segir ánægjulegt að óvissuástandinu sé að ljúka. 

Rúmlega tvö hundruð manns hafði verið gert að rýma heimili sín í bæjunum tveimur. Mikil úrkoma var á Austfjörðum síðustu tvo sólarhringa og snjóflóðahætta fylgdi henni. Nokkur flóð féllu fyrir ofan Neskaupstað en engin ógnuðu byggð. Þrjú flóð í nótt og þrjú flóð aðfaranótt mánudags. Vegurinn um Fjarðarheiði milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar var lengi vel lokaður og komust íbúar Seyðisfjarðar þá ekki út úr bænum.

Nú hafa almannavarnir ákveðið að aflétta rýmingum í Neskaupstað. Jón Björn Hákonarson, verkefnastjóri almannavarna á Austfjörðum og íbúi í Neskaupstað, segir gott að allt hafi farið á besta veg og engin snjóflóð fallið á byggð.

„„Rýmingar eru ekki gerðar í neinu tómarúmi, þeir eru auðvitað gerðar með öryggissjónarmið í fyrirrúmi. Ef eitthvað skildi koma upp og veður skildi fara þannig. Það er alltaf heilmikið inngrip en engu að síður afskaplega gleðilegt þegar þeim lýkur og það hefur ekki reynt á neitt. Við erum ánægð yfir því,“ segir Jón Björn. 

Veðrið er að skána í Neskaupstað en í gær var spáð mikilli ofankomu og hvassviðri.

„Það var ekki eins mikið og menn ætluðu. Það var ofankoma fram eftir morgun, ekki eins mikið og búist var við,“ segir Jón Björn. 

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni er óhætt að aflétta rýmingu í Neskaupstað. Enn er verið að skoða gögn varðandi Seyðisfjörð og hvort hægt sé að aflétta rýmingum þar. Þar snjóaði í nótt, annað en í Neskaupstað, og þurfa vísindamenn að meta stöðuna betur eftir hádegi. Gert er ráð fyrir að rýmingum verði aflétt þar síðar í dag. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×