Allir viðburðir á Íslandi á einum stað á Vísi Mobilitus 21. janúar 2025 11:20 Þórarinn Stefánsson eigandi Mobilitus hleður öllum viðburðurm inn á nýja viðburðasíðu hér á Vísi. Tryggvi Már Gunnarsson Splunkuný viðburðasíða er komin í loftið hér á Vísi í samvinnu við Mobilitus. Á síðunni er að finna þúsundir viðburða á aðgengilegan hátt. „
Markmiðið er að fá fólk til að fara og gera eitthvað skemmtilegt og þarna gefst lesendum Vísis kostur á að finna alla viðburði sem fara fram, á öllum sviðum og um allt land. Við takmörkum okkur ekki við neitt,“ segir Þórarinn Stefánsson, annar stofnenda og eigenda hugbúnaðarfyrirtækisins Mobilitus sem stendur á bak við nýja viðburðasíðu á Vísi. Lesendur hafa án efa tekið eftir fjólbubláa viðburðaborðanum á forsíðu Vísis. Einfaldar lífið og gerir það skemmtilegra „Við erum með yfir 400.000 framtíðarviðburði um allan heim í grunninum hjá okkur og til að auðvelda aðgengið látum við gervigreind flokka viðburðina og segja til um hvort viðburðurinn er til dæmis fyrir krakka, fyrir eldri borgara og einnig hverskonar viðburð um ræðir, dans, tónleikar eða hvað? Við auðveldum fólki einnig að leita svæðisbundið svo fólk sér hvað er að gerast í sinni heimasveit.“ Fjölbreytt flóra viðburða „Allir viðburðir sem við finnum og allt sem okkur er bent á fer þarna inn. Þarna er allt frá smærri viðburðum á bókasöfnum, prjónanámskeiðum og lestrarstundum fyrir hunda til stærri viðburða, tónleika og sýninga,“ segir Þórarinn. Hann hleður öllum viðburðum ókeypis inn en í boði er að auka sýnileika hvers viðburðar á einfaldan hátt. Þórarinn segir rannsóknir sýna að hægt sé að tvöfalda fjölda þeirra sem fara á viðburði ef fólk veit einfaldlega af þeim. „Þau sem standa að viðkomandi viðburði geta kostað mögnun eða „boozt“ svo hann birtist á forsíðu Vísis, á Lífinu á Vísi og undirsíðum. Með því má tryggja að fólk detti um skemmtilega viðburði án þess að þurfa að leita að þeim. þegar smellt á viðburð er boðið upp á þann möguleika að ,,magna“ birtinguna á Vísi. Meirihluti þjóðarinnar heimsækir Vísi Viðburðahaldarar eru stöðugt að reyna að ná til fólks, meðal annars í gegnum samfélagsmiðla og „boozta“ jafnvel fyrir helling af peningum, til dæmis á Facebook. En unga fólkið er ekki þar inni og þar fyrir utan borgar Facebook ekki skatta á Íslandi. Nú gefst hins vegar tækifæri á að ná til Íslendinga á heimavelli en yfir 87% þjóðarinnar heimsækja Vísi í hverri viku.“ Einstakt á íslenskum markaði Viðburðasíðan fór í loftið í nóvember og er Þórarinn hæst ánægður með viðtökurnar. „Þetta svínvirkar – fullt af fólki smellir á viðburðauglýsingar á forsíðunni og þaðan á viðburðasíðuna og þaðan inn á miðasöluna. Viðburðasíðan er einstök á íslenskum markaði og er þegar farin að vekja athygli á erlendum mörkuðum. Einu sinni var hægt að fletta blöðum og sjá hvað var að gerast nú eru þau blöð sem enn eru gefin út hætt að birta viðburði framundan. Okkur hefur tekist að gera þetta á hagkvæman hátt og við og gervigreindin erum stöðugt að bæta flokkunina og grafa upp nýja viðburði til að bæta við.“
Tónleikar á Íslandi Leikhús Menning Skóla- og menntamál Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira