Innlent

Í­búar inn­lyksa vegna flóðs í Ölfus­á

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Eins og sést á þessari mynd, sem Einar Sindri tók er flóðið mjög stórt og nær yfir einhverja þúsundir hektara þegar allt er tiltekið.
Eins og sést á þessari mynd, sem Einar Sindri tók er flóðið mjög stórt og nær yfir einhverja þúsundir hektara þegar allt er tiltekið. Einar Sindri Ólafsson

Þúsundir hektara lands eru á floti eftir flóð í Ölfusá í Arnarbælishverfinu svonefnda í Ölfusi í dag. Nokkrir íbúar á sveitabæjum þar eru innlyksa í húsum sínum vegna flóðsins.

Það er eins og yfir hafsjó að líta þegar horft er yfir svæðið og jarðirnar í Arnarbælishverfinu, það er vatn út um allt. Bændur hafa fylgst vel með ástandinu í dag.

„Já, við höfum eiginlega ekki séð svona vatnsmagn síðan 1983 en þá var það töluvert meira og meiri jakaburður og ís, sem kom með því flóði,” segir Kristbjörg Eyvindsdóttir, bóndi á bænum Grænhóli í Ölfusi og bætir við. „Mér skilst að það sé farið að leka hérna inn í hús í Ósgerði í skemmu, sem er þar en ég veit ekki stöðuna á Arnarbælistorfunni, það er bara ekki fært þangað.”

Og það hefur vaxið rosalega mikið í þessu í dag eða hvað ?

„Já, þetta gerðist ótrúlega hratt. Rétt upp úr klukkan 11 var alveg akstursfært hérna út eftir en tæpum klukkutíma seinna var þetta alveg orðið kolófært, meira að segja á dráttarvél.”

Kristbjörg, sem segir að flóðið hafi vaxtið ótrúlega hratt í dag.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Kristbjörg segist vita um eitthvað af íbúum, sem eru innlyksa á heimilum sínum vegna flóðsins. Einar Sindri, starfsmaður Eflu myndaði flóði með dróna í dag og þar sést mjög vel hvað umfangið er rosalega mikið.

„Það er bara vatn hérna alveg upp með öllu og niður með öllu. Þetta er bara eins og sjór yfir að líta,” segir Einar Sindri.

Einar Sindri segir að þetta séu örugglega einhverjir þúsundir hektara, sem eru undir vatni.

Hvert heldur þú að framhaldið verði, hverju spáir þú?

„Það hlýtur að sjatna,” segir Kristbjörg hlægjandi.

Einar Sindri, ásamt pabba sínum og Kristbjörgu að skoða drónamyndir, sem hann tók í dag af flóðinu.Magnús Hlynur Hreiðarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×