Íslenski boltinn

Stór­sigur hjá KR-ingum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Sigurðsson var með tvennu í leiknum í dag.
Aron Sigurðsson var með tvennu í leiknum í dag. Vísir/Hag

KR-ingar byrja nýtt ár vel í fótboltanum því þeir unnu 6-0 stórsigur á Fjölni í Reykjavíkurmóti karla í dag.

Óskar Hrafn Þorvaldsson mætir greinilega með sína menn klára í slaginn á undirbúningstímabilinu.

Aron Sigurðarson var með fyrirliðabandið og skoraði tvö mörk í leiknum.

Hin mörkin skoruðu þeir Eiður Gauti Sæbjörnsson, Júlíus Mar Júlíusson, Matthias Præst Nielsen og Gabríel Hrannar Eyjólfsson. Allir þessir fjórir eru nýkomnir til félagsins.

Júlíus Mar var þarna að skora á móti sínu uppeldisfélagi en hann kom til KR frá Fjölni í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×