Innlent

Árið í fyrra það heitasta frá upp­hafi mælinga

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Halldór Björnsson segir þetta vera tímamót.
Halldór Björnsson segir þetta vera tímamót. Vísir/RAX

Árið í ár var það heitasta árið frá upphafi mælinga. Meðalhiti jarðar náði fyrsta skipti neðri þröskuldi Parísarsakomulags um að hnattrænni hlýnun verði haldið innan við eina og hálfa gráðu.

Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs hjá Veðurstofu Íslands, segir þetta vera tímamót og að auknar kröfur verði gerðar til Íslands að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

„Þetta er í fyrsta skipti sem farið er yfir þetta. Hitinn var núna 1,6 gráðum hærri. Sjálfsagt verður það þannig næstu ár að það mun detta aftur niður á næstu tveimur árum og svo mun þetta sveiflast fram og aftur. Það þarf 20 ára meðaltal til að menn samþykki að það sé komið endanlega yfir þessi mörk,“ segir hann.

Halldór segir að vegna þess hve gríðarlega heitt árið í ár var á heimsvísu sé líklegt að það nái ekki slíkum hæðum aftur á næstu árum en að blikur séu á lofti og að hlýnunin gæti orðið óafturkræf.

„Það er langlíklegast að það kólni aftur eitthvað en svo tekur þessi hlýnun sem er knúin af losun gróðurhúsalofttegunda við og ýtir okkur varanlega yfir 1,5 ef ekkert er gert,“ segir hann.

Hvernig lítur þetta út fyrir okkur hér?

„Það verða örugglega gerðar meiri kröfur á okkur um að draga úr losun. Sem er auðvitað áhugavert á sama tíma og hér er alls ekkert heitt. Við erum einn af örfáum stöðum á jörðinni sem var ekkert yfir neinum mörkum heldur undir þeim. Næsta ár gæti orðið öðruvísi hjá okkur og við verðum bara að sjá hvernig það fer.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×