Nýttu klásúlu í samningi Maguire Sindri Sverrisson skrifar 3. janúar 2025 17:16 Harry Maguire virtist á leið í burtu frá Manchester United sumarið 2023 en er nú með samning við félagið sem gildir til 2026. Getty Samningur Harry Maguire við Manchester United gildir nú fram í júní 2026, sama mánuð og næsta HM í fótbolta hefst, eftir að klásúla í samningi hans við félagið var virkjuð. Rúben Amorim vill þó meira frá miðverðinum.
Amorim greindi frá því á blaðamannafundi í dag að samningur Maguire hefði framlengst um eitt ár en þessi 31 árs gamli leikmaður hefur verið hjá United frá árinu 2019, eftir að hann var keyptur frá Leicester fyrir 80 milljónir punda. Maguire virtist á útleit frá United undir stjórn Eriks ten Hag, sem svipti hann fyrirliðabandinu og vildi selja hann. Litlu munaði að Maguire færi til West Ham sumarið 2023 en hann lék engu að síður 22 deildarleiki á síðustu leiktíð, og hefur spilað tólf í vetur. Vill að Maguire bæti sig sem leiðtogi Maguire lék alla sjö deildarleiki United í desember og virðist því eiga framtíð undir stjórn Amorims, þó að gengi United hafi reyndar verið arfaslakt en liðið er nú í 14. sæti með aðeins 22 stig eftir 19 leiki, og á næst leik við topplið Liverpool á útivelli á sunnudaginn. Amorim kallar eftir því að Maguire, sem tók við fyrirliðabandinu þegar Lisandro Martínez var skipt af velli á 65. mínútu gegn Newcastle um síðustu helgi, sýni meira frumkvæði sem leiðtogi. United þurfi leiðtoga: „Ég talaði við hann í morgun og sagði honum að hann þyrfti að bæta sinn leik á vellinum. Við þurfum mjög mikið á honum að halda og hann þarf líka að bæta sig sem leiðtogi, því við vitum öll hvaða aðstæðum hann lenti í hérna en við þurfum sárlega á honum að halda núna og þess vegna virkjum við glaðir klásúluna fyrir Harry,“ sagði Amorim á blaðamannafundi í dag.
Enski boltinn Mest lesið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Sjá meira