2027 væri hálfkák Ole Anton Bieltvedt skrifar 23. desember 2024 06:00 Ríkisstjórn þriggja valkyrja er gleðiefni. Samhentar, frjálsar konur, heilsteyptar og fullar gagnkvæms trausts, með góðar hugmyndir og vilja til breytinga og framfara, taka við stjórnvelinum. Gömlu afturhaldsseggirnir, D og B/M, sem hafa drottnað yfir landsmönnum í 100 ár, og skilja eftir vont samfélag klíkuskapar og spillingar, kvaddir. „Thank God“. Kosning um ESB framhaldsviðræður brýn skylda Það, sem standa verður ofarlega á verkefnalista nýrrar stjórnar, er kosning um framhaldsviðræður við ESB. Fara verður í þær strax næsta vor. Hér er um einfalt viðfangsefni, einfalda spurningu, að ræða. Vilja menn, að samningaumleitunum við ESB sé framhaldið, þannig, að í ljós komi, hverjir kostir, aðildarskilmálar, Íslands væru, ef til fullrar aðildar kæmi. Flestir vilja væntanlega láta á þetta reyna. Í því felst engin áhætta og engin skuldbinding. Í öllu falli er þessi spurning einföld, og engin þörf á „þróaðri umræðu“ – full háfleygt orðalag hjá forsætisráðherra – hér. Tafarlaus handhöfn brýn og boðin Punkturinn er þessi: Þá aðeins, ef kosið verður um framhald viðræðna vorið 2025, og, ef „já“ fæst, framhald viðræðna hefst haustið 2025, fæst niðurstaða 2027 um það, hverjir beztu aðildarkostir Íslands gæru verið. Með þeim hætti mætti svo kjósa um það vorið 2028, hvort þjóðin vildi fulla ESB-aðild, eða ekki. Þannig væri hægt að afgreiða þetta mál frá, með aðild eða án, á valdatímabili þessarar ríkisstjórnar. Það hlýtur að vera grunnmarkmið og -skylda. Mitt mat er, að stjórnin hafi einmitt verið til þess kosin. Mikið fylgi C og S í kosningunum, þar sem þyngdin var vaxandi á C, sem helzt hélt uppi fána ESB og Evru, var fyrir mér merki þess, að verulegur hluti þjóðarinnar vilji nú láta reyna á það, hvort ekki væri kominn tími á alvarlega skoðun ESB og Evru, en Evra fæst ekki án fullrar ESB-aðildar, fremur en, að púkkað sé upp á krónuhagkerfið, með þeim okurvöxtum, sem því fylgja og brunnið hafa á mörgum fjölskyldum hér, áfram. Ég tel, að minnst helmingur fylgis C, kannske meira, sé ESB/Evru fylgi. Þessvegna er það bæði brýnt og boðið, að á þessu máli sé tekið án tafar. 2027 kosning tilgangslaust ábyrgaðarleysi Ef C og ríkisstjórnin skyldi haga þessum málum, eins og nú hefur verið gefið til kynna, að ekki verði kosið um framhaldsviðræður fyrr en 2027, þá er hún búin að spila þessu máli og þeirri ábyrgð á því, sem hún var kosin til að bera, algjörlega út úr höndunum á sér. Hugsanlegar framhaldsviðræður haust 2027 þýða bókstaflega ekki neitt fyrir þessa ríkisstjórn eða þá, sem kusu hana. Þeim yrði engan veginn lokið 2028, í væntanlegri valdatíð þessarar ríkisstjórnar, og enginn veit nú, hvað tekur þá við, eða hver ríkisstjórn landsins verður eftir 2028. Þetta ESB plan ríkistjórnarinnar vantar tögl og hagldir. Gjaldmiðlaúttekt hlutlausra erlendra sérfræðinga góð hugmynd – skýr mynd í lok kjörtímabils Hugmyndin um úttekt hlutlausra erlendra aðila á gjaldmiðlamöguleikum landsmanna er góð. Til hennar ætti að stofna strax. Jafnhliða ætti að framhalda samningaumleitunum um ESB-aðild, sé það vilji landsmanna, sem ég er sannfærður um - því, þar er engu að tapa, allt að vinna - og, þegar á liði kjörtímabili og til kosningar um aðild kæmi, lægi hvorttveggja fyrir: Mat sérfræðinga á bezta gjaldmiðlinum og þau ESB aðildarkjör, sem biðust. Með þessum hætti gengi ríkisstjórnin í verkið af þeirri ábyrgð og með þeim afgerandi hætti, sem hún var kjörin til. 2027 væri hálfkák. Höfundur er samfélagsrýnir og dýraverndarsinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ole Anton Bieltvedt Evrópusambandið Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar