Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Samúel Karl Ólason skrifar 19. desember 2024 16:00 Lögregluþjónar að störfum í Nígeríu. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty/Adekunle Ajayi Að minnsta kosti 35 börn eru látin eftir að hafa troðist undir á jólahátíð í Ibadan í Nígeríu í gær. Forsvarsmenn hátíðarinnar höfðu lofað peningaverðlaunum og mat fyrir gesti en íbúar segja rúmlega fimm þúsund börn hafa mætt, auk foreldra og annarra.
Þegar hátíðin var að hefjast hófst mikill troðningur og dóu 35 börn. Samkvæmt frétt BBC voru að minnsta kosti sex börn flutt á sjúkrahús. Mögulegt er að þau hafi verið fleiri en það þykir óljóst. Þá segist lögreglan hafa handtekið átta manns sem komu að því að halda hátíðina og þar á meðal er aðalskipuleggjandi hennar, sem er fræg kona í suðvesturhluta Nígeríu. Konan, sem heitir Naomi Silekunola, segist vera drottning/spákona. Í heildina er talið að rúmlega tíu þúsund manns hafi sótt hátíðina en efnahagsástand Nígeríu þykir verulega slæmt þessa dagana og útskýrir það að hluta til af hverju svo margir mættu í von um að fá peninga og mat. BBC segir nokkur sambærileg atvik hafa átt sér stað í Nígeríu undanfarin ár. Several people have been killed after a stampede broke out during a religious event in Nigeria’s Oyo state. pic.twitter.com/TNRehWWgxJ— The Sudan Times (@thesudantimes) December 19, 2024
Nígería Erlend sakamál Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira