
La Barceloneta er því fyrsti alvöru spænski veitingastaðurinn á Íslandi en hann er staðsettur í hjarta Reykjavíkur, í Templarasundi 3, og býður upp á úrval klassískra katalónskra rétta á borð við paellur og tapas en staðurinn er innblásin af veitingastöðunum í Barceloneta, gamla fiskimannahverfinu við ströndina í Barcelona.
„Við erum mjög stolt og ánægð með þessa viðurkenningu,“ segir Dagur Pétursson, einn af fimm eigendum La Barceloneta.

Hún sýnir að við erum alvöru spænskur veitingastaður utan Spánar og er mikill gæðastimpill, ekki bara fyrir okkur sjálf og viðskiptavini okkar, heldur líka ýmsa samstarfsaðila á borð við matarhátíðina Food and fun sem verður haldin í mars á næsta ári eða aðra menningartengda viðburði því nú njótum við stuðnings frá spænskum yfirvöldum.“
Það krefst mikillar vinnu að fá slíka viðurkenningu að sögn Dags. „Ferlið tók um hálft ár og við þurftum að framvísa alls konar gögnum eins og lista yfir þau hráefni sem við notum og þá sérstaklega lykilhráefni eins og ólífuolía, kvittanir, matseðilinn, myndir af réttunum, uppskriftarbókina og upplýsingar um bakgrunn starfsfólks og eigenda svo það helsta sé talið upp. Það kemst ekki hver sem er í gegnum þetta nálarauga.“
Nú er búið að festa þar til gerðan viðurkenningarskjöld á framhlið hússins auk þess sem nafn veitingastaðarins er komið á vef yfir viðurkennda spænska veitingastaði um allan heim.

Veitingastaðurinn er í eigu tveggja hjóna sem eru hálf íslensk og hálf spænsk en fimmti eigandinn er Pedro sem ræður ríkjum í eldhúsinu.
„Við eigum það öll sameiginlegt að brenna fyrir spænskri matargerð og viljum breiða út boðskap paellunnar, sögunnar og menningarinnar frá fiskimannahverfinu í La Barceloneta.
Pedro er ekta Spánverji og matreiðslumeistari af Guðs náð. Hann býr yfir nærri 40 ára reynslu af spænskri matargerð og hefur m.a. átt tvo veitingastaði í Torrevieja.

Það er unun að fylgjast með honum í eldhúsinu en hann getur útbúið sex paellur á sama tíma meðan hann dansar eins og rokkstjarna yfir pönnunum.“

Og matseðillinn, maður lifandi! Paella réttirnir líta ótrúlega spennandi út þar sem leikið er með ólík hráefni á borð við leturhumar, risarækjur, kjúkling, blekfisk, krækling, smokkfisk og þorsk.
Tapas réttirnir eru ekki síðri en þar má finna ljúffengt hráefni eins og kolkrabba á galískan máta, djúpsteiktan smokkfisk, bravas kartöflur, spænska eggjaköku, risarækjur í hvítlauk, krókettur og ofnsteikt reykt grænmeti.

„Hver paella réttur er fyrir tvo þannig að það er tilvalið að blanda saman paella og nokkrum tapas réttum og deila saman. Þannig fæst alvöru spænsk matarsprengja og gleði sem mun vara í marga daga.“
Dagana 25. – 26. desember verður boðið upp á sérstakan jólamatseðil. „Ég vil hvetja áhugasama til að panta sem fyrst og njóta ekta spænskra jólarétta.
Það er einnig hægt að panta jólaseðilinn fyrir einkahópa og aðra viðburði eins og starfsmannagleði hjá fyrirtækjum. Allir pantanir fyrir jólaseðilinn þurfa að fara í gegnum um bókunarkerfið okkar.“