Stakk sér í skorstein á flótta undan lögreglu Samúel Karl Ólason skrifar 13. desember 2024 13:21 Maðurinn fastur ofan í skorsteininum. AP/Lögreglan í Fall River Seinheppinn maður í Fall River í Massachusetts í Bandaríkjunum varð fyrir því óláni í vikunni að festast í skorsteini. Þangað stakk hann sér á flótta undan lögregluþjónum, sem þurftu í kjölfarið að koma honum til bjargar með hjálp slökkviliðsmanna.
Lögreglan í Fall River hefur lýst atvikinu á þann hátt að maðurinn hafi verið „fylltur anda“ jólasveinsins. Í frétt NBC segir að rannsóknarlögreglumenn hafi verið að framfylgja leitarheimild þegar hinn 33 ára gamli Robert Langlais flúði undan þeim. Hann fór upp á þak nærliggjandi hús og reyndi að komast undan með að stökkva ofan í reykháf. Þar sat hann þó pikkfastur. Þegar lögregluþjónarnir kíktu fyrst ofan í skorsteininn virðist þeim hafa brugðið nokkuð. „Þú ert fáviti,“ var það fyrsta sem annar þeirra sagði. Hér að neðan má sjá myndband sem unnið er úr upptökum úr vestismyndavélum lögregluþjóna. Kona var einnig handtekinn á vettvangi og án sambærilegra „fíflaláta“ eins og lögreglan orðar það en sá þriðji komst undan með því að stökkva ekki ofan í skorstein heldur af húsþaki ofan á bíl og hlaupa á brott. Bæði Langlais og konan hafa verið ákærð fyrir vörslu fíkniefna og önnur brot.
Bandaríkin Mest lesið Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Innlent Egill Þór er látinn Innlent Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Innlent Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Erlent Gleðileg jól, kæru lesendur Innlent Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Innlent Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? Innlent Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Innlent Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent Varað við ferðalögum víða um land Innlent Fleiri fréttir Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Sjá meira