Netanjahú ber vitni í spillingarmáli sínu Kjartan Kjartansson skrifar 10. desember 2024 08:52 Benjamín Netanjahú í dómsal í Tel Aviv 10. desember 2024. Hann er ákærður fyrir mútuþægni, fjársvik og umboðssvik. Vísir/EPA Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, settist í vitnastúku í fyrsta skipti í réttarhöldum í spillingarmáli á hendur honum í morgun. Vitnisburði forsætisráðherrans hafði verið frestað vegna stríðsins gegn Hamas-samtökunum.
Nokkrir tugir mótmælenda tóku á móti Netanjahú fyrir utan dómshúsið í Tel Aviv í morgun, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Einhverjir þeirra voru stuðningsmenn hans en aðrir kröfðust þess að hann gerði meira til þess að frelsa um hundrað gísla sem eru enn í haldi Hamas eftir hryðjuverkaárás samtakanna í október í fyrra. Netanjahú var ákærður fyrir mútuþægni, fjársvik og umboðssvik árið 2019 en brotin tengdust gjöfum sem hann þáði frá auðugum vinum sínum. Þá var hann sakaður um að kaupa sér jákvæða fjölmiðlaumfjöllun með því að gera eigendum fjölmiðlanna greiða. Forsætisráðherrann neitar sök og hefur sakað saksóknara um pólitískar ofsóknir og nornaveiðar. Hann er fyrsti forsætisráðherra Ísraels sem er ákærður fyrir glæp. Málið hefur dregist á langinn, nú síðast vegna stríðsins á Gasa. Dómari ákvað hins vegar á fimmtudag að Netanjahú þyrfti að byrja að bera vitni. Það þarf hann að gera þrisvar í viku.
Ísrael Erlend sakamál Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira