Rétt um 250 af þeim ríflega þrettán hundruð sem sóttu um listamannalaun fá úthlutun úr launasjóðum listamanna á næsta ári. Úthlutað er úr átta launasjóðum eftir fagstétt og nemur greiðslan 560 þúsund krónum á mánuði í verktakagreiðslu. Þrjátíu þeirra sem fá úthlutun á næsta ári teljast nýliðar, og þá hljóta tuttugu yfir 67 ára aldri úthlutun samkvæmt nýjum reglum. Þeirra á meðal er Edda Björvins.
„Þetta gerir mér kleift að halda áfram að skrifa þessi þrjú leikrit sem ég er að skrifa og taka þátt í alls konar viðburðum sem ég fæ ekkert greitt fyrir en mig langar til að leggja til svo að þjóðfélagið okkar verði auðugra,“ segir Edda. „Listamannalaunin eru auðvitað bara grunnur að menningu. Við erum ofsalega montin af íslenskri menningu og við erum ofsalega montin af öllum listamönnunum okkar. Ef að við setjum ekki niður fræ í gróðurhúsið, þá er engin uppspretta.
Engin uppskera ef engin eru fræin
Skiptar skoðanir hafa löngum verið um ágæti listamannalauna og vekur það mikið umtal ár hvert þegar fyrir liggur hverjir fá úthlutun.
„Það er bara eins og að ætlast til að fá kartöfluuppskeru og setja ekki niður kartöflur. Þannig að þetta er bara lífsnauðsynlegt ef að við ákveðum að vera menningarþjóð. Svo getum við bara ákveðið að vera iðnaðarþjóð eða eitthvað annað. En við erum ofboðslega montin af þessu, þá verðum við að standa með þessu, við verðum að setja niður fræin,“ segir Edda.
Hún kveðst sérstaklega þakklát Lilju Alfreðsdóttur, fráfarandi ráðherra menningarmála, fyrir hennar framlag til lista. „Hún hefur staðið með listamönnum fram í rauðan dauðann og það er ekki algengt að ráðamenn þjóðarinnar geri það. Hún til dæmis setur á þennan sérstaka sjóð sem heitir vegferð sem er fyrir 67 og eldri, þá bæði til að þakka fyrir störfin sem maður hefur unnið og til þess að gera manni kleift að vinna,“ segir Edda sem bendir á að flestir listamenn vinni mikið á sinni starfsæfi ólaunað.
„Ég er bara svo heppin að hafa starfsorku. Ég gæti náttúrlega unnið mér til húðar og bara dottið niður dauð eins og Íslendingar gera í ofvinnu,“ segir Edda sem er þakklát fyrir það framlag sem hún fær og á móti vilji hún gefa áfram af sér til samfélagsins.
Allt á réttri leið
Hún segist skilja að í gegnum tíðina hafi listamannalaun og fyrirkomulagið við úthlutun þeirra verið umdeilt, hins vegar séu hlutirnir á réttri leið nú.
„Við erum einhvern veginn á leiðinni að gera þetta betra. Nú er þetta allt komið undir Rannís, allt þetta fjármagn sem menn voru bara að veita í litlum hópum einhvers staðar eftir pólitísku ágæti þeirra sem ekki einu sinni sóttu um. Þetta voru bara einhverjir bitlingar og þetta var algjörlega glatað en við erum svo mikið á réttri leið og þetta á bara eftir að vera enn betra,“ segir Edda.
„Bara áfram íslensk menning og listamenn og takk fyrir að setja þessi fræ niður.“