Íslendingarnir allt í öllu í Meistaradeildinni Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 27. nóvember 2024 21:39 Janus Daði kom með beinum hætti að tíu mörkum í kvöld. @ehfcl Sigvaldi Björn Guðjónsson og Sveinn Jóhannsson skoruðu samtals tíu mörk þegar Kolstad mætti Pick Szeged frá Ungverjalandi í Meistaradeild Evrópu í handbolta. Það dugði ekki til þar sem Janus Daði Smárason fór á kostum í sigurliðinu. Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson voru svo allt í öllu í frábærum sigri á stórliði Barcelona.
Leikurinn í Noregi var mjög spennandi og aðeins munaði einu marki á liðunum í hálfleik, 16-17. Gestirnir voru skrefi á undan í síðari hálfleik og unnu á endanum þriggja marka sigur, lokatölur 33-36. Sigvaldi Björn skoraði 7 mörk á meðan Sveinn skoraði 3 mörk. Janus Daði skoraði hins vegar 5 mörk og gaf jafn margar stoðsendingar. Í Magdeburg unnu heimamenn frækinn sigur á toppliði B-riðils, Barcelona. Sigurinn var mikilvægur þar sem Íslendingalið Magdeburgar er í brasi og þarf á sigrum að halda til að tryggja sér sæti í útsláttarkeppninni. Eftir jafnan fyrri hálfleik stungu heimamenn af í síðari hálfleik og unnu fimm marka sigur, lokatölur 28-23. Ómar Ingi var markahæstur í liði Magdeburgar með 8 mörk ásamt því að gefa eina stoðsendingu. Gísli Þorgeir átti einnig mjög góðan leik en hann skoraði 5 mörk og gaf 2 stoðsendingar. Staðan í B-riðli Meistaradeildarinnar er nú þannig að Barcelona er á toppnum með 15 stig að loknum 9 leikjum. Þar á eftir koma Janus Daði og félagar með 12 stig. Nantes og Álaborg eru með 11 stig, Magdeburg erí 5. sæti með sjö stig á meðan Kielce og Kolstad eru bæði með sex stig. Zagreb rekur svo lestina með fjögur stig.
Handbolti Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira