Ástkona njósnarans skildi eftir sig sjóðheit bréf Jónas Sen skrifar 12. nóvember 2024 07:01 Emilíana Torrini og hljómsveit fluttu lög af nýútkominni plötu í bland við eldri lög. Jakko Eino Halevi hitaði upp. Eldborg í Hörpu 9. nóvember. JS Tónleikar Emilíönu Torrini í Eldborg í Hörpu á laugardagskvöldið byrjuðu ekki vel. Upphitunin var í höndunum á finnska raftónlistarmanninum Jakko Eino Halevi; afhverju veit ég ekki. Kannski var það vegna þess að tónleikarnir voru svokallaðir „IA 24 partner event“, þ.e. tengdir Iceland Airwaves. Allir vita að það eru ekki alltaf jólin þar á bæ.
Atriðið var afskaplega klént. Tónlistin var klisjukennd, söngurinn flatur og óspennandi, og svo óskýr að ekki var nokkur leið að skilja um hvað var verið að syngja. Dularfullar hreyfimyndir á veggnum fyrir ofan sviðið voru aðallega hnífapör í skrykkjóttum dansi. Sem betur fer var atriðið ekki langt, rúmar tuttugu mínútur - og svo var gert tuttugu mínútna hlé! Ég heyrði hneykslað fólk allt í kringum mig fnæsa hátt. Perri fyrir hinu sorglega En biðin var þess virði. Emiliana Torrini sagði á undan einu laginu sínu að hún væri „perri fyrir sorglegum lögum“. Að fíla sorgleg lög er þó engin perversjón. Sjálfur Rakhmanínoff hélt því einu sinni fram að tónlistin og ljóðlistin væru systur og sorgin væri móðir þeirra. Vissulega voru mörg lögin á dagskránni í molltóntegund (sem er dekkri en dúrtóntegundin), en þau voru alltaf seiðandi og hittu mann í hjartastað. Nýja platan Meginuppistaðan á tónleikunum var nýútkomin plata Emilíönu, Miss Flower. Hún heitir eftir móður vinkonu Emilíönu, en þegar hún lést uppgötvaðist svört taska með ástarbréfum. Þær vinkonur fóru í gegnum bréfabunkann – og það var sko krassandi, sjóðheit lesning. Geraldine Flower var afskaplega frjálslynd, hún giftist aldrei en átti marga ástmenn. Stærsta sambandið var við háttsettan njósnara í liði Ronalds Reagan, sem fékk fyrir vikið veigamikinn sess í dagskránni. En allir lagatextarnir voru innblásnir af bréfum flestra þessara elskhuga og laglínurnar voru ætíð lokkandi. Frábær hljómsveit Andrúmsloftið sem frábær hljómsveitin skapaði í kringum sönginn var auk þess magnað. Engu að síður var merking ljóðanna gefin í skyn fremur en að henni væri slengt framan í mann. Í lágstemmdri tónlistinni var þó kröftug undiralda, sem gerði að verkum að maður hlustaði dáleiddur. Í það heila var hljómsveitarleikurinn fíngerður, blæbrigðaríkur og kom jafnvel stundum á óvart. Ýmsar einleiksstrófur voru innblásnar. Minnistætt er eitt lagið sem þar sem píanóleikarinn spilaði ísmeygilegan krómatískan tónstiga (þ.e. allar nótur áttundarinnar, líka þessar svörtu). Hann framkallaði sjarmerandi hughrif. Sjaldheyrður galdur Tæknilega séð var hljómsveitin ávallt samtaka, þétt og einbeitt. Rúsínan í pylsuendanum var svo söngur Emilíönu, sem var einstaklega fallegur, tær og bjartur, en þrunginn tilfinningum. Útkoman var sérstæður - og sjaldheyrður - galdur. Blanda af ljóðrænni andakt og litríkum, en fíngerðum hljóðfæraleik var heillandi. Mér liggur við að segja að Emilíana Torrini sé Chopin íslenskrar popptónlistar. Svo ljúf var tónlistin hennar og grípandi. Niðurstaða: Mögnuð kvöldstund sem þó byrjaði ekki vel.
Gagnrýni Jónasar Sen Menning Tónleikar á Íslandi Mest lesið Heitustu pörin í húrrandi jólagír Tíska og hönnun Vann ekki úr nauðguninni og skaddaðist á mænu Lífið Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Menning Kim mældist með „litla heilavirkni“ Lífið Fagnaði 35 árum með stæl í Kólumbíu Lífið Stjörnulífið: Ólétta og ást í 23 ár Lífið Þetta er fólkið sem fær listamannalaun 2026 Menning Ljósavinir fögnuðu í Sjálandi Lífið Radiohead frestar tónleikum sínum í Köben Lífið Er hægt að njóta kynlífs þrátt fyrir mikla áfallasögu? Lífið Fleiri fréttir Vonlaust í víkinni Hörkuhasar þótt persónusköpun skorti Bragðlaust eins og skyr með sykri Sambandslaus Hamlet Sjá meira