Fótbolti

Ís­lensku stelpurnar gætu lent í riðli með heims­meisturunum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir bíða örugglega spenntar eftir niðurstöðunni í hádeginu ásamt hinum stelpunum í íslenska landsliðinu.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir bíða örugglega spenntar eftir niðurstöðunni í hádeginu ásamt hinum stelpunum í íslenska landsliðinu. vísir/Anton

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta kemst að því í hádeginu í dag hverjir verða mótherjar liðsins í Þjóðadeild kvenna á næsta ári.

Íslenska liðið er í öðrum styrkleikaflokki og getur ekki lent í riðli með Danmörku, Englandi eða Hollandi sem eru í sama flokki. UEFA segir frá.

Liðið lendir aftur á móti í riðli með einu liði úr efsta styrkleikaflokknum en í honum eru heimsmeistarar Spánverja, Þýskaland, Frakkland og Ítalía.

Í þriðja styrkleikaflokki eru síðan Svíþjóð, Noregur, Austurríki og Belgía en eitt þeirra liða verður með Íslandi í riði.

Síðasta liðið kemur síðan úr fjórða styrkleikaflokknum en þar eru Portúgal, Skotland, Sviss og Wales.

Samkvæmt FIFA-listanum þá yrði erfiðasti riðillinn fyrir íslensku stelpurnar skipaður liðum Spánar, Svíþjóðar og Portúgals en sá léttasti yrði skipaður liðum Ítalíu, Belgíu og Wales.

Keppnin verður leikin í febrúar (19. til 26. febrúar), apríl (2. til 8. apríl) og maí/júní landsliðsgluggunum (28. maí til 3. júní), en drátturinn hefst klukkan 12:00 í dag.

  • Styrkleikaflokkar og staða á FIFA-listanum:
  • Styrkleikaflokkur eitt
  • Spánn (3. sæti á heimslistanum)
  • Þýskaland (4)
  • Frakkland (10)
  • Ítalía (14)
  • Styrkleikaflokkur tvö
  • Ísland (13)
  • Danmörk (12)
  • England (2)
  • Holland (11)
  • Styrkleikaflokkur þrjú
  • Svíþjóð (5)
  • Noregur (16)
  • Austurríki (17)
  • Belgía (20)
  • Styrkleikaflokkur fjögur
  • Portúgal (22)
  • Skotland (23)
  • Sviss (25)
  • Wales (29)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×