Óvænt nýr vinstri hornamaður í íslenska landsliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. október 2024 08:32 Dana Björg Guðmundsdóttir hefur verið að gera mjög góða hluti með Volda í norska handboltanum í vetur. @voldahandbal Það verður nýtt andlit í landsliðshópi Arnars Péturssonar fyrir komandi æfingaleiki við Pólland. Nýliðinn kemur inn í hópinn í fyrsta sinn aðeins tæpum mánuði fyrir stórmót.
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta er að undirbúa sig fyrir Evrópumótið í Austurríki í nóvember og desember næstkomandi. Liðið kemur saman 21. október og verður saman í viku. Liðið spilar vináttulandsleiki við Pólland í þessum glugga sem verða þá síðustu undirbúningsleikir liðsins fyrir EM. Arnar Pétursson landsliðsþjálfari hefur samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísis ákveðið að taka inn nýliða í hópinn fyrir þetta verkefni og það leikmann sem hefur aldrei spilað á Íslandi. Leikmaðurinn heitir Dana Björg Guðmundsdóttir og spilar sem vinstri hornamaður hjá norska b-deildarliðinu Volda. Hún er 22 ára gömul, fædd árið 2002. Dana Björg hefur búið í Noregi alla tíð en báðir foreldrar hennar eru íslenskir. Það eru þau Guðmundur Bragason og Inga Steingrímsdóttir sem voru bæði margfaldir Íslandsmeistarar í vaxtarrækt á síðustu öld. Dana Björg hefur verið að spila mjög vel með Volda í vetur og skoraði meðal annars fimmtán mörk í bikarleik í haust. Volda er í öðru sæti í norsku b-deildinni eins og er en Dana hefur skorað 51 mark í fyrstu sex deildarleikjunum eða 8,5 mörk að meðaltali í leik. Hún er langmarkahæst í Volda liðinu eða með þrettán mörkum meira en sú næstmarkahæsta. Hún hélt upp á landsliðssætið með því að skora ellefu mörk úr aðeins þrettán skotum í síðasta leik og aðeins einn leikmaður í norsku b-deildinni hefur skorað meira en hún.
Landslið kvenna í handbolta EM kvenna í handbolta 2024 Mest lesið FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Sýður á Svisslendingum Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira