Innlent

Pall­borðið: Staða heimila og fyrir­tækja og efnd lof­orða í kjara­samnings­við­ræðum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Sigurður Ágúst Sigurðsson, Ragnar Þór Ingólfsson og Sigríður Margrét Oddsdóttir verða gestir Pallborðsins í dag.
Sigurður Ágúst Sigurðsson, Ragnar Þór Ingólfsson og Sigríður Margrét Oddsdóttir verða gestir Pallborðsins í dag.

Staða heimilanna og fyrirtækja á haustmánuðum, útlitið í efnahagsmálum og efnd loforða í tengslum við kjarasamninga verða til umræðu í Pallborðinu í dag, sem sýnt verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 12.15.

Sérfræðingar spá því að verðbólgan verði komin niður í um fimm prósent í árslok en greiningardeild Íslandsbanka gaf það út í gær að gert væri ráð fyrir að stýrivextir yrðu 8,25 prósent um mitt næsta ár, 7,5 prósent í lok árs 2025 og 5,5 prósent í árslok 2026.

Stýrivextir eru í dag 9,25 prósent og hafa verið óbreyttir í meira en ár.

Á sama tíma hafa bankarnir hækkað vexti á verðtryggðum lánum.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, sagði á dögunum að hækkanirnar væru til marks um „taumlausa græðgi“ sem hefði fengið að viðgangast í fjármálakerfinu en þessu svaraði Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, með því að útskýra að það væri ekki hægt að selja brauðið ódýrara en hveitið.

Húsnæðiseigendur sitja uppi með hærri afborganir og lán þar sem fastir vextir eru að losna, neytendur borga meira fyrir matarkörfuna og leigjendur sitja í súpunni á þröngum húsnæðismarkaði.

Til alls þessa var horft við gerð kjarasamninga fyrr á árinu. Hvernig hefur ræst úr þeim fyrirheitum sem gefin voru? Og hvernig verður þróunin í vetur? 

Þetta og fleira verður til umræðu í Pallborðinu klukkan 12.15 í dag. Stjórnandi er Hólmfríður Gísladóttir en gestir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Sigurður Ágúst Sigurðsson, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík.

Horfa má á Pallborðið í spilaranum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×