Skoðun

Beðið eftir orku­mála­ráð­herra

Eggert Valur Guðmundsson og Gunnar Aron Ólason skrifa

Í maí 2024 hófst vinna sveitarstjórnar Rangárþings ytra við að leita svara við matsspurningum um hagræn áhrif vindorkuvers við Vaðöldu (Búrfellslund). Spurningarnar voru sendar til Landsvirkjunar, Fjármálaráðuneytisins, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Tilgangur spurninganna var m.a. að fá ítarlegar upplýsingar um hagræn áhrif vindorkuversins á nærsamfélagið, í samræmi við stefnu aðalskipulags sveitarfélagsins og vindorkustefnu þess.

Landsvirkjun og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun svöruðu spurningunum fljótlega, eða í júní 2024, Fjármálaráðuneytið hafði svarað strax daginn eftir að fyrirspurnin barst, eða þann 24. maí. En Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur ekki enn svarað spurningunum núna þegar langt er liðið á septembermánuð.

Spurningarnar sem sendar voru á Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið voru eftirfarandi:

1. Eru til gögn hjá ráðuneytinu er varða nýtingu orkunnar sem hlýst af Búrfellslundi (Vaðölduver)?

2. Verður orkan úr Búrfellslundi nýtt til orkuskipta eða nýrra orkufrekra verkefna?

3. Getur ráðuneytið skilgreint hvaða hagrænu áhrif yrðu fyrir sveitarfélagið Rangárþing ytra ef tillögur starfshóps um skattlagningu orkuvinnslu næðu fram að ganga? Sbr. skýrslu starfshópsins með viðaukum.

4. Hvað felst í samningi um þróun grænnar atvinnuuppbyggingar í sveitarfélaginu Ölfusi sem skrifað var undir 9. júní 2023 sbr.; https://www.stjornarradid.is/gogn/rit-og-skyrslur/stakt-rit/2023/06/09/Aform-um-graena-atvinnuuppbyggingu-i-Sveitarfelaginu-Olfusi/

Seinagangur ráðuneytisins tefur framvindu mála

Þessi seinkun á svörum frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu veldur því að mikilvægar ákvarðanir um vindorkuverkefnið gætu tafist. Þrátt fyrir að framkvæmdaleyfi hafi verið samþykkt að hluta, vantar enn mat á heildaráhrifum verkefnisins á nærsamfélagið, þar á meðal þau efnahagslegu. Sveitarfélagið hefur sett fram stefnu um að tryggja jafnvægi milli umhverfisverndar og efnahagslegrar uppbyggingar, en slíkt jafnvægi verður aðeins tryggt ef upplýsingar frá öllum aðilum liggja fyrir.

Það er því brýnt að Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið bregðist skjótt við og sendi svör við matsspurningunum svo að sveitarfélagið geti lokið þessari mikilvægu vinnu. Svörin eru grundvöllur þess að hægt sé að meta umfang verkefnisins og hvernig það muni gagnast samfélaginu til lengri tíma litið. Nærsamfélagið á skilið að fá skýra mynd af áhrifum og ávinningi þessara orkumannvirkja.

Eggert Valur Guðmundsson er oddviti sveitarstjórnar Rangárþings ytra og Gunnar Aron Ólason formaður Skipulagsnefndar Rangárþings ytra.




Skoðun

Sjá meira


×