Loomer fylgdi Trump meðal annars á minningarathöfn vegna árásarinnar á Tvíburaturnana 2001 á miðvikudaginn. Hún hefur ítrekað varpað fram samsæriskenningum um árásina. Í fyrra gaf hún í skyn að árásin hefði verið „innanhúsverk“. Hún tjáði sig einnig um árásina á X (áður Twitter) í dag og gaf í skyn að yfirvöld hefðu logið um árásina.
Loomer hefur tvisvar sinnum boðið sig fram til þings og naut hún stuðnings Trumps.
Sjá einnig: Trump lýsir yfir stuðningi við yfirlýstan múslimahatara
Eins og fram kemur í frétt Washington Post hafði Loomer nokkrum dögum áður sagt að ef Kamala Harris, sem rekur uppruna sinn meðal annars til Indlands, sigrar í kosningunum í nóvember muni Hvíta húsið lykta eins og karrý og ræður úr Hvíta húsinu fluttar úr úthringingamiðstöðvum.
Í júlí sagði Loomer að Harris væri vændiskona og að hún neytti fíkniefna.
Neita að segja hvaða hlutverki hún gegni
Eins og áður segir hefur Loomer ítrekað sést í fylgd með Trump víðsvegar um Bandaríkin á undanförnum dögum. Hún segist þó ekki vinna fyrir forsetann fyrrverandi og forsvarsmenn framboðs hans hafa neitað að útskýra af hverju hún hefur fylgt forsetanum eftir.
Hún hefur titlað sig sem rannsóknarblaðamann í þjónustu Trumps.
New York Times segir að Loomer búi í Flórída og sjáist oft í Mar-a-Lago, sveitaklúbbi og heimili Trumps. Þá hafi hún flogið með honum til Iowa í janúar og er Trump sagður hafa ætlað að ráða hana í apríl. Hann mun hafa hætt við vegna mótmæla hans nánustu ráðgjafa.
Meðal þeirra sem hafa gagnrýnt Loomer á undanförnum dögum er Marjorie Taylor Greene, þingkona í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og bandamaður Trumps til langs tíma. Þær hafa lengi átt í opinberum deilum.
Greene sagði í gær að ummæli Loomer og hatursfull hegðun hennar væri „stærðarinnar vandamál“ fyrir Repúblikana.
Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður, hefur einnig sagt að vera Loomer með Trump gæti komið niður á honum í kosningunum. Hann sagði að ummæli hennar í gegnum tíðina væru „óhugnanleg“ og rúmlega það.
Loomer sagði einnig á X (áður Twitter) í dag að eina ástæðan fyrir því að Repúblikanar væru að gagnrýna hana, væri að þeir væru afbrýðissamir því þeir hefðu ekki verið í flugvél með Donald Trump. Vísaði hún sérstaklega til Greene og Graham og sagði að „fólkinu sem skipti máli“ væri illa við þau.

Fer hörðum orðum um innflytjendur
Loomer hefur farið mikinn í því að dreifa ósannindum um að innflytjendur frá Haítí í Springfield í Ohio séu að éta gæludýr fólks í bænum. Trump hélt þessu einnig fram á kappræðunum í vikunni en ekkert er til í þessum, samkvæmt embættismönnum og lögreglu í bænum.
Margir innflytjendur frá Haítí eru í bænum en þeir eru þar löglega.
Sjá einnig: Gerði sér mat úr kattaráti andlega veikrar konu
Trump hélt þessum lygum áfram á kosningafundi í Arizona í gær, þar sem hann fór hörðum orðum um innflytjendur og hælisleitendur í Bandaríkjunum.
Á þessum fundi sagðist Trump reiður yfir þessu flóði fólks til Bandaríkjanna og sagðist hann reiður yfir því að ungum bandarískum stúlkum væri nauðgað og þær myrtar af grimmum glæpsamlegum ólöglegum innflytjendum, eins og hann orðaði það.
Á áðurnefndum kappræðum var Trump bent á að Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) hefði gefið út tölfræði sem sýndi að innflytjendur væru hlutfallslega ólíklegri til að brjóta af sér en innfæddir í Bandaríkjunum.
Trump: "I'm angry about young American girls being raped and sodomized and murdered by savage criminal aliens" pic.twitter.com/VHtNE6o1ni
— Aaron Rupar (@atrupar) September 12, 2024
Bæjarstjórinn ósáttur
Frá kappræðunum hefur sprengjuhótunum rignt yfir fyrirtæki og stofnanir í bænum. Bæði í dag og í gær hefur þurft að rýma tvo skóla og senda börn heim vegna slíkra hótana.
Rob Rue, bæjarstjóri Springfield, sagði í viðtali við NYT að íbúar þyrftu hjálp, ekki hatur. Íbúar bæjarins vildu horfa saman til framtíðar og það væri erfitt í andrúmsloftinu kringum bæinn þessa dagana.
„Það er pirrandi þegar stjórnmálamenn, á landssviðinu, fara svo rangt með það sem er að gerast og afskræma samfélag okkar,“ sagði Rue.
Fréttamaðurinn Chris Hayes fjallaði um orðræðu Trump-liða í garð innflytjenda í gær. Hann sagði ljóst að Trump-liðar vissu að þetta myndi enda með ofbeldi í garð þeirra og að þeim væri alveg sama.
Vísaði hann sérstaklega í ummæli sem Loomer hefur látið frá sér falla um innflytjendur.
WATCH: "Republicans understand that the lies they're perpetuating about immigrants leads to violence against immigrants. And you know how I know? Because I heard it from a close confidante to Trump named Laura Loomer," says @chrislhayes. pic.twitter.com/GBTFNizhBk
— All In with Chris Hayes (@allinwithchris) September 13, 2024
Um sextíu þúsund manns búa í Springfield og þar af eru um fimmtán þúsund innflytjendur sem hafa flutt þangað á undanförnum árum. AP segir þá hafa flutt í bæinn vegna lausra starfa og tiltölulega ódýrs húsnæðis.
Einhverjir íbúar eru ósáttir við þær afleiðingar sem þessi fjölgun hefur haft. Hærra húsnæðisverð, aukin umferð og færri störf. Þá hefur álag á innviði í bænum aukist mjög.
Þá leiddi dauðsfall ellefu ára gamals drengs í fyrra til mikillar spennu. Hann dó þegar innflytjandi frá Haítí, sem var ekki með bílpróf, keyrði á skólabíl. Foreldrar drengsins fordæmdu þó í vikunni stjórnmálamenn sem hafa reynt að nýta sér dauða sonar þeirra í pólitískum tilgangi.