Nýi 52 milljóna punda leikmaður Man. Utd á hækjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. júlí 2024 08:30 Leny Yoro í fyrsta leik sínum með Manchester United en sá leikur endaði ekki vel. Getty/Joe Prior Ferill Leny Yoro með Manchester United byrjaði ekki vel því hann meiddist strax í fyrsta leik. Nú lítur út fyrir að meiðslin gætu verið alvarleg.
Breska ríkisútvarpið segir frá því að Yoro hafi sést á hækjum á æfingasvæði United en liðið er statt í æfingaferð í Bandaríkjunum. United borgaði franska liðinu Lille 52 milljónir punda fyrir þennan átján ára miðvörð 18. júlí síðastliðinn. Hann þykir vera einn allra efnilegasti varnarmaður heims og er ætlað stórt hlutverk í liðinu á fyrsta tímabilinu þrátt fyrir ungan aldur. 52 milljónir punda eru 9,2 milljarðar í íslenskum krónum og því engin smá upphæð. Yoro gat hins vegar ekki sett neinn þunga á fótinn þegar hann fór af velli í fyrsta leik sínum á móti Arsenal. Heimildir BBC úr herbúðum United herma að félagið sé enn að átta sig á alvarleika meiðslanna. Knattspyrnustjórinn Erik ten Hag hefur ekki talað við fjölmiðla síðan Yoro meiddist og mun ekki gera það fyrr en annað kvöld á blaðamannafundi fyrir æfingarleik á móti Liverpool. United mætir samt Real Betis í San Diego í kvöld í öðrum æfingarleik ferðarinnar. 🚨 Leny Yoro spotted today on crutches with a protective boot on his left leg. (🎥 - @rdeeb00) pic.twitter.com/NJT5uafwHm— United Zone (@ManUnitedZone_) July 31, 2024
Enski boltinn Mest lesið Óhugnanlegt atvik á Brúnni Enski boltinn Uppgjörið: FH - Valur 37-36 | FH knúði fram oddaleik í maraþonleik Handbolti Faðir leikmanns Grindavíkur gagnrýnir liðið: „Fyrir neðan allar hellur“ Körfubolti Umfjöllun: Valur 85-79 Grindavík | Einvígið fer í oddaleik Körfubolti Stjarnan - Tindastóll 97-103 | Stólarnir knúðu fram oddaleik Körfubolti Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Enski boltinn Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna fyrir oddaleik gegn Tindastól Körfubolti Mamma fór inn á völlinn og sparkaði í þrettán ára strák Sport Saka skaut Arsenal áfram í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Fótbolti Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Enski boltinn Fleiri fréttir Sér góðar fréttir fyrir fótboltann í heild sinni með afhroði Chelsea Henry vill að Lewis-Skelly byrji gegn Atlético Madrid Flottustu hjólhestaspyrnumörk í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Titilvonir City tóku á sig skell í kvöld Óhugnanlegt atvik á Brúnni Forest skellti Chelsea Gætu þurft að tapa til að komast í Meistaradeild Evrópu Segir að óásættanlegt tímabil Liverpool megi ekki endurtaka sig Brjálaður út í eigin leikmenn: „Hafa sóað heilu ári af mínum ferli“ Aron búinn að skipta um skoðun og vill Carrick áfram Slot við Hjörvar: „Ég held að öllum hafi liðið þannig“ Mjög brugðið við fréttirnar af Ferguson Sjáðu sigurmark Mainoo og Tottenham stökkva upp úr fallsæti „Svona hefur þetta verið allt mitt líf“ Tottenham kom sér upp úr fallsæti Ferguson fluttur á spítala Rúlluðu Palace upp og komnir í Evrópusæti Mainoo tryggði sigur eftir að United gaf tvö mörk Isak aftur meiddur Sjáðu öll mörkin úr enska boltanum: Gyökeres og Saka í banastuði fyrir Skytturnar Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Sjá meira