Það leynist ýmislegt í töskunni hjá Elísabetu Blöndal.

Hvað er í töskunni þinni og segðu okkur aðeins frá því sem er?
Sími, gleraugun mín og lyklar, stundum svolítið margir ef vinnudagarnir eru þannig, fyrir stúdíó og svona.
Sólgleraugu - nota þau allan ársins hring og á margar gerðir sem ég nota til skiptanna.
Varaolía, varablýantur, varalitur, chilli in june bursti fyrir touch up, finnst hann fullkominn til að bursta lauslega yfir förðunina ef eitthvað crease-ast yfir daginn, bros línurnar líklegastar.
Sólarvarnarstifti - fæ litabreytingabletti í andlitið ef ég gleymi mér.
Ilmvatnsprufur, elska góðan ilm og rótera mikið á milli eftir því í hvaða stuði ég vakna.
Tech veskið - þar leynist oft ýmislegt sem ég þarf eða þarf bara alls ekki.
Steinefnaduft eða freyðitöflur til að skella út í vatnið.
Vasaljós - hefur bjargað mér furðu oft og líka mikið hax verandi mamma með tvö eirðarlaus börn út í bæ, rétta þeim vasaljós og þau eru góð í svona 30 mín.
Augabrúnalit er oft að finna í veskinu hjá mér og alltaf hárgreiðu og spegil.

Svo er ég stundum með falda orkusteina hér og þar.
Eva konan mín sendir mig stundum með sérvalin stein út í daginn eftir því hvað henni finnst ég þurfa hverju sinni. Krúttmóment.
Svo er ég alltaf með svona 40 prósent af óþarfa með mér og virðist ekki læra af því.
Dagarnir mínir eru oft svolítið út um allt og ég kann ekki að flýta mér hægt. Ég hef alveg lent í því að vera á ferðinni heilan dag með tvær óopnaðar froosh glerflöskur ofan í tösku sem ég vissi ekki af, bara svona til að bæta í vöðvabólguna.
Enginn tími til að spá í af hverju veskið væri óþarfa þungt.

Hefur einhver hlutur tilfinningalegt gildi?
Ef ég er með orkusteina á mér þá er mikið tilfinningalegt gildi þar á bak við.
Er eitthvað sem er alltaf í töskunni þinni?
Allt ofantalið. Kannski of mikið af farangri daglega en ég er miklu zen-aðari þannig, að grípa bara allt með mér út í daginn frekar en að útpæla það hvað ég þarf og hvað ekki.
Hver er þín uppáhalds taska og af hverju?
Ég er ekki með mikið töskublæti en þykir rosa vænt um tvær sem eru meira spari, önnur er gömul frá mömmu og hin er thrift-uð.

Ég er í leit að hinni fullkomnu hversdags tösku - þar sem ég kæmi tölvu, tveimur hörðum diskum, teikniborði, hleðslutæki og öllu því helsta fyrir. Kaupi nánast ekkert í flýti, hugsa mig lengi vel um og vanda valið því mér finnst svo vont að eiga hluti og föt sem ég nota ekki.

Ertu dugleg að taka til í töskunni þinni og halda röð og reglu?
Nah, tek gott „reset“ af og til en þess á milli geta leynst tómar umbúðir af próteinstykkjum eða öðru sem ég hendi í mig á ferðinni.
Það er samt alltaf röð og regla og alltaf allt á sínum stað. Er mikið að vinna með að hólfaskipta hlutunum í hin og þessi skipulagshólf, sem mega helst ekki vera eins, svo ég geti stungið hendinni ofan í töskuna og fundið þau blindandi út frá hvaða áferð er á hverju, eitt er mesh og annað glært með sléttri áferð til dæmis.
Hljómar alveg galið en guð hvað ég elska þetta system.

Ertu gjarnan með margar töskur á þér eða margar til skiptanna?
Já þegar ég vinn langa daga að heiman og það er lítill tími fyrir pásur þá er ég alltaf með einn risastóran tote bag sem ég hendi alls konar ofan í - svona bara til öryggis pokinn - nestispoki, auka föt, vinnudót sem komst ekki fyrir annars staðar og svona.
Þannig að ég fer nánast aldrei út úr húsi og heim aftur öðruvísi en með smekkfullt fang af dóti og vill helst fara bara eina ferð þannig ég klöngrast inn eftir vinnudaginn með 3-4 töskur á öxlunum og 2 til viðbótar kannski í eftirdragi (á hjólum).

Stór eða lítil taska og af hverju?
Ég vil hafa hana frekar rúmgóða - svo ég komi örugglega lífinu mínu fyrir í henni.