„Sjáum mikið á eftir Pavel“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. maí 2024 13:04 Pavel Ermonlinskij stýrði Tindastóli í rúmt ár. vísir/hulda margrét Forráðamenn Tindastóls segja mikla eftirsjá af Pavel Ermolinskij sem er hættur sem þjálfari karlaliðs félagsins í körfubolta.
Eftir afar farsælan feril sem leikmaður tók Pavel við Tindastóli í janúar á síðasta ári. Undir hans stjórn varð liðið Íslandsmeistari í fyrsta sinn síðasta vor. Fyrir rúmum tveimur mánuðum fór Pavel í veikindaleyfi og nú er ljóst að hann snýr ekki aftur til starfa sem þjálfari Tindastóls. Dagur Þór Baldvinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls vildi ekki mikið tjá sig um tíðindi dagsins í samtali við Vísi. Hann sagði þó að ákvörðunin að slíta samstarfinu hafi gert gerð í góðu og allir aðilar væru sáttir. „Við sjáum mikið á eftir Pavel. Hann er góður drengur og frábær körfuboltamaður,“ sagði Dagur um þjálfarann fyrrverandi. Svavar Atli Birgisson stýrði Tindastóli út tímabilið en liðið tapaði fyrir Keflavík í bikarúrslitum og Grindavík í átta liða úrslitum Subway deildarinnar. Aðspurður um leitina að næsta þjálfara sagði Dagur að hún stæði yfir. „Það hlýtur að skýrast fljótlega. Það styttist í það með hverjum deginum,“ sagði Dagur um hvenær tíðinda mætti vænta af þjálfaramálum Tindastóls.
Subway-deild karla Tindastóll Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Handbolti Fleiri fréttir Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Sjá meira