Sport

Dag­skráin í dag: Sófa­sunnu­dagur af bestu gerð

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
KR er í beinni í dag.
KR er í beinni í dag. Vísir/Anton Brink

Alls eru 16 beinar útsendingar á dagskrá Stöðvar 2 Sport í dag. Við sýnum beint frá Íslandi, Bandaríkjunum, Ítalíu, Hollandi, Englandi og Spáni.

Stöð 2 Sport

Klukkan 16.00 er leikur Stjörnunnar og ÍA í Bestu deild karla í fótbolta á dagskrá. Klukkan 19.00 er komið að leik Fram og Fylkis í sömu deild. Klukkan 21.20 eru Tilþrifin á dagskrá.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 10.20 er leikur Cagliari og Lecce í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í fótbolta, á dagskrá. Klukkan 12.50 mætast Hellas Verona og Fiorentina í sömu deild.

Klukkan 15.50 mætast AC Milan og Genoa. Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson leikur með Genoa.

Klukkan 23.00 er úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta á dagskrá.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 14.50 er leikur Barca og Kanarí í ACB-deildinni í körfubolta á Spáni á dagskrá.

Klukkan 18.35 er leikur Roma og Juventus í Serie A á dagskrá.

Stöð 2 Sport 5

Klukkan 17.50 er leikur Keflavíkur og Stjörnunnar í Subway-deild kvenna í körfubolta á dagskrá.

Vodafone Sport

Klukkan 10.10 er leikur PSV og Sparta Rotterdam í Eredivisie, efstu deild Hollands í fótbolta, á dagskrá.

Klukkan 13.10 mætast Manchester City og Arsenal í ensku úrvalsdeild kvenna í fótbolta. Man City trónir á toppnum og stefnir á titilinn sem Chelsea hefur einokað undanfarin ár.

Klukkan 16.55 hefst útsending frá leik Houston Dash og Kansas City í NWSL-deildinni í fótbolta.

Klukkan 19.30 er Formúla 1 á dagskrá. Að þessu sinni fer keppnin fram í Miami í Bandaríkjunum.

Besta deildin

Klukkan 16.00 er leikur KA og KR í Bestu deild karla á dagskrá. Klukkan 19.15 er leikur HK og Íslandsmeistara Víkings á dagskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×