Everton vann og er nú fimm stigum frá fallsæti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. apríl 2024 14:37 Idrissa Gueye kom Everton í 1-0 á móti Nottingham Forest á Goodison Park í dag. AP/Peter Byrne Everton vann gríðarlega mikilvægan botnbaráttuslag á móti Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Everton vann leikinn 2-0 og er ekki aðeins komið fjórum stigum á undan Nottingham Forest í fallbaráttunni heldur einnig fimm stigum frá fallsæti. Hlutirnir féllu ekki með Forest mönnum sem báðu hvað eftir annað um vítaspyrnu án þess að fá neitt, hvorki frá dómara leiksins né myndbandsdómurunum. Idrissa Gana Gueye kom Everton í 1-0 á 29. mínútu með lúmsku langskoti sem Matz Sels kom ekki vörnum við í marki Nottingham Forest. Dwight McNeil skoraði annað markið á 76. mínútu og aftur var það lúmsk langskot sem Selz réði ekki við. Í báðum tilfellum voru þetta hnitmiðuð skot í stöngina og inn. Þetta var annar sigur Everton í síðustu þremur leikjum og þessi sex stig vega þungt í baráttunni um áframhaldandi líf í deildinni. Þetta þýðir einnig að Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley eru aðeins þremur stigum á eftir Forest. Forest er með 26 stig, Luton er með 25 stig og Burnley er með 23 stig eftir sigurinn í gær.
Enski boltinn Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Fótbolti Sara Björk snýr heim í Hauka Íslenski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Sjá meira