Vilja vinna alla titla fyrir fráfarandi Klopp Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. mars 2024 09:31 Conor Bradley vill allt fyrir Klopp gera. Robin Jones/Getty Images Liverpool er komið í 8-liða úrslit Evrópudeildarinnar í knattspyrnu eftir stórsigur á Sparta Prag á Anfield í gær. Hægri bakvörðurinn Conor Bradley segir leikmenn liðsins vilja „vinna alla titla sem í boði eru,“ fyrir fráfarandi þjálfara félagsins, Jürgen Klopp.
Þrátt fyrir að vera 5-1 yfir eftir fyrri leik liðanna þá léku leikmenn Liverpool eins og þeir ættu lífið að leysa. Á endanum vann Liverpool 6-1 sigur og einvígið þar með 11-2. Segja má að þarna hafi verið um að ræða leik kattarins að músinni. „Klopp er eini þjálfari félagsins sem ég hef þekkt, svo það er grátlegt að sjá á eftir honum,“ sagði hinn ungi Bradley eftir leik. „Við viljum vinna alla titla sem í boði eru svo við getum kvatt hann á besta mögulega máta,“ bætti hann við. Liverpool er nú komið í 8-liða úrslit Evrópudeildarinnar. Liðið hefur þegar unnið enska deildarbikarinn og er einnig í harðri baráttu við Arsenal og Manchester City um Englandsmeistaratitilinn. Aðeins stig skilur Skytturnar frá Lundúnum og hin tvö liðin að þegar tíu umferðir eru eftir. Þá mætast Manchester United og Liverpool í 8-liða úrslitum enska bikarsins, FA Cup, á sunnudag. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Upphitun fyrir stórleik sunnudagsins hefst klukkan 15.00 og leikurinn sjálfur hálftíma síðar eða 15.30.
Fótbolti Mest lesið Bruno til bjargar Enski boltinn Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Enski boltinn Leika fyrir luktum dyrum í öðru landi eftir lætin í Amsterdam Fótbolti „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Íslenski boltinn Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Fótbolti Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Fótbolti Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga Fótbolti Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Fótbolti Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Fótbolti Fleiri fréttir Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Bruno til bjargar Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera markahæstur Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Fékk símtal frá Arteta en bætti Ödegaard í hópinn Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Fundað um framtíð Guardiola í vikunni Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ „Frammistaðan var góð“ Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Jafntefli sem gerir lítið fyrir bæði lið Nýliðarnir sóttu þrjú stig til Tottenham og Newcastle skellti Forest United menn á allt öðrum og betri stað eftir inngrip Van Nistelrooy Liverpool hefur áhyggjur af meiðslunum hjá Trent Á bara eftir að skora á Anfield og heimavelli Brentford „Því miður gefur sigur á Man City aðeins þrjú stig“ „Kemur alltaf að því að eitthvað gerist í fyrsta skipti á ævinni“ Gestirnir réðu ekki við hraðann í strákunum hans Slot Willum Þór lagði upp þegar Birmingham tapaði óvænt stigum Brighton sá til þess að Man City tapaði fjórða leiknum í röð „Ég held að hann sé betri útgáfa af Haaland“ Guardiola skilur ekkert í valinu á Grealish Sjá meira