Real Madrid fékk nágranna sína úr Atletico Madrid í heimsókn í borgarslag á Bernabeu en Atletico var og er tíu stigum á eftir Real í töflunni.
Brahim Díaz kom heimamönnum yfir strax á 20. mínútu og lengi vel leit út fyrir að það myndi duga Real til sigurs. Stefan Savic náði að vísu að jafna metin á 50. mínútu en markið var dæmt af eftir yfirferð í VAR-sjánni þar sem að annar leikmaður Atletico var rangstæður og byrgði Andriy Lunin sýn í marki Real.
Fjórum mínútum var bætt við venjulegan leiktíma og þegar tíminn var nánast á þrotum náði Marcos Llorente að stanga boltann í netið og bjargaði stigi fyrir gestina.
Llorente fagnaði að vonum innilega en fagnið hefur vakið nokkra athygli á samfélagsmiðlum.
Marcos Llorente With the Lionel Messi's Celebration after scoring against Real Madrid pic.twitter.com/AU2eLRaAkf
— ACE (@FCB_ACEE) February 4, 2024