Þjóðverjar klúðruðu íslenska þjóðsöngnum Sindri Sverrisson skrifar 18. janúar 2024 20:26 Íslenska landsliðið. Vísir/Vilhelm Gestgjafarnir í Þýskalandi gerðu slæm mistök þegar spila átti þjóðsöngvana fyrir leik Íslands og Þýskalands á EM karla í handbolta í kvöld, í Lanxess Arena í Köln.
Gestgjafarnir í Þýskalandi gerðu slæm mistök þegar spila átti þjóðsöngvana fyrir leik Íslands og Þýskalands á EM karla í handbolta í kvöld, í Lanxess Arena í Köln. Eftir að þjóðsöngur Þýskalands hafði verið spilaður án nokkurra vandkvæða, og hann sunginn af tæplega 20 þúsund áhorfendum í höllinni, kom babb í bátinn þegar sá íslenski var spilaður. Einhverra hluta vegna var spilað rangt lag, eða að minnsta kosti kolröng útgáfa af þjóðsöngnum. Strákarnir okkar ætluðu í upphafi að syngja með, sem og þeir íslensku stuðningsmenn sem eru í höllinni, en hættu fljótt við. Sjá mátti leikmenn Íslands með spurnarsvip í andlitinu, eða jafnvel hálfhneykslaða, og fljótlega var byrjað að baula í stúkunni. Tónlistin var þá stöðvuð og vallarþulur baðst afsökunar. Hann hvatti fólk til að klappa og allir í höllinni hófu að kyrja „Ísland! Ísland!“ þar til að rétta útgáfan af þjóðsöngnum fannst loksins. Hún var svo spiluð og leikurinn gat hafist. Ísland spilaði þrjá leiki í Ólympíuhöllinni í München og þar voru engin vandræði með þjóðsönginn. Leikurinn við heimamenn í kvöld er sá fyrsti af að minnsta kosti fjórum sem Ísland spilar í Köln.
Handbolti EM 2024 í handbolta Landslið karla í handbolta Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Fótbolti Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Körfubolti Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Körfubolti Konurnar komu Íslandi upp um deild í Bakgarðshlaupum Sport Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Fótbolti Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Fótbolti Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Fleiri fréttir „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri Sjá meira