Linda birti myndir af parinu á göngu um hátíðarklætt Hellisgerði í Hafnarfirði þar sem þau nutu ljósadýrðarinnar og samveru hvors annars í kuldanum.
„Stundum þurfum við að stíga út fyrir þægindarammann og tala upphátt um drauma okkar (og vera sama um hvað öðru fólki finnst um þá). Um hálfu ári eftir að ég sagði frá þessum draumi mínum í þættinum hitti ég ástina mína, á spænskri paradísareyju.
Hann var ekki það sem ég hélt ég væri að leita að en svo komst ég að því að hann er einmitt allt sem ég vissi ekki að ég væri að leita að - og gott betur,“ skrifaði Linda í færslu á dögunum:
„Ef við opnum á drauma okkar og þorum að fylgja þeim, þá gerast kraftaverkin. Lífið er svo magnað.“