Tíu mínútur í kælingu fyrir kjaftbrúk eða taktísk brot Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. nóvember 2023 06:46 Leikmenn gætu fengið appelsínugul spjöld fyrir ákveðin brot. Stu Forster/Getty Image Enska úrvalsdeild karla í knattspyrnu stefnir á að taka upp tíu mínútna kælingu fyrir leikmenn sem fá gult spjald fyrir taktískt brot eða munnsöfnuð. Verður þetta ekki eina breytingin sem tekin verður upp á næstu leiktíð.
Í leit að lausn við taktískum brotum og munnsöfnuðu leikmanna íhugar enska úrvalsdeildin nú að senda leikmenn í „skammarkrókinn.“ Í stað þess að fá gult spjald verða leikmenn sendir af velli í tíu mínútur. Á fundi deildarinnar á þriðjudag var ákveðið að taka upp regluverk sem við Íslendingar könnumst við úr handbolta, þar eru leikmenn sendir af velli í tvær mínútur en þar sem knattspyrnuleikur er töluvert verri yrðu leikmenn sendir af velli í 10 mínútur. Football to trial 10-minute sin-bins for cynical fouls as effective 'orange card' @ben_rumsby#TelegraphFootball— Telegraph Football (@TeleFootball) November 28, 2023 Í grein The Telegraph segir að „skammarkrókurinn“ hafi virkað til að minnka munnsöfnuð hjá yngri aldursflokkum á Englandi og nú sé planið að gera slíkt hið sama í úrvalsdeildinni. Þá munu leikmenn hljóta sömu refsingu fyrir taktísk brot. Gæti farið svo að appelsínugult spjald verði kynnt til leiks fyrir brot af þessu tagi. Í fréttinni kemur einnig fram að til að sporna við því að leikmenn umkringi dómarann þá munu aðeins fyrirliðar liða fá að ræða ákvarðanir dómara við manninn sem valdið hefur.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Íslenski boltinn Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum Íslenski boltinn Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Enski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Sjá meira