Nýtt skip til Grindavíkur fyrir sjómannadag Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 28. nóvember 2023 09:05 Gunnar Tómasson – framkvæmdastjóri Þorbjarnar, Friðrik J Arngrímsson,, Hrannar Jón Emilsson, Ottó Hafliðason, Hjörtur Ingi Eiríksson, Sævar Birgisson, Ægir Óskar Gunnarsson og Þórhallur Gunnlaugsson. Útgerðarfélagið Þorbjörn hf. í Grindavík sjósetti nýtt skip, Huldu Björnsdóttur GK-11, á Spáni í gær. Um er að ræða fyrstu nýsmíðina í yfir hálfa öld hjá fyrirtækinu. Stefnt er á að skipið komi siglandi inn í Grindavíkurhöfn fyrir sjómannadag.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að um sé að ræða nýjan ísfiskstogara. Skipið var sjósett í Gijón á Spáni í gær. Fram kemur að skipið sé 58 metra langt og 13,6 metra breitt. Það er fyrsta nýsmíði Þorbjarnar síðan árið 1967. Togarinn er nefndur í höfuðið á Huldu Björnsdóttur sem stofnaði Þorbjörn ásamt eiginmanni sínum Tómasi Þorvaldssyni, þann 24. nóvember árið 1953. Hulda vann hjá fyrirtækinu alla tíð. „Nú er búið að sjósetja skrokkinn. Næsta skref er að setja á hann yfirbygginguna og setja upp þann búnað sem þarf. Við reiknum með því að þetta klárist allt með vorinu,“ segir Gunnar Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar. „Þótt það hafi gengið á ýmsu í Grindavík síðustu mánuði þá erum við hvergi nærri af baki dottin. Við stefnum á að koma siglandi á nýju skipi inn í Grindavíkurhöfn fyrir sjómannadaginn og vonandi getum við hafið veiðar síðsumars.“ Sjálfvirk flokkun á aflanum fer fram á vinnsludekki skipsins og frágangur aflans í fiskikör fer fram á einum stað á vinnsludekkinu. Rík áhersla á að draga úr orkunotkun Undanfarin ár hefur Þorbjörn hf. tekið úr rekstri þrjú línuskip og tvo frystitogara en í staðinn hefur fyrirtækið keypt frystitogara frá Grænlandi og ísfisktogara frá Vestmannaeyjum. Nú heldur Þorbjörn hf. áfram endurnýjun skipaflota fyrirtækisins. Hulda Björnsdóttir GK-11 er hönnuð af Sævari Birgissyni skipatæknifræðingi hjá Verkfræðistofunni Skipasýn ehf. í nánu samstarfi við starfsmenn Þorbjörns. Skipasmíðastöðin Armon í Gijón sá um smíðina. Fram kemur í tilkynningu félagsins að við hönnun skipsins hafi verið lögð rík áhersla á að draga úr orkunotkun og þar með að umhverfisáhrif þess verði sem minnst. Aðalvél skipsins, sem verður um 2400 KW, mun knýja skrúfu sem verður 5 metrar í þvermál. Stærð og snúningshraði skrúfunnar verður lægri en áður hefur þekkst í eldri fiskiskipum af sambærilegri stærð. Skipið verður þess vegna sérlega sparneytið og því í hópi sparneytnustu skipa í þessum flokki. Þá verður skipið búið til veiða með tveimur botnvörpum samtímis og togvindurnar knúnar rafmagni. Í hönnun skipsins er sérstaklega litið til sjóhæfni þess með tilliti til öryggis og bættrar vinnuaðstöðu. Í hönnun skipsins er sérstaklega litið til sjóhæfni þess með tilliti til öryggis og bættrar vinnuaðstöðu. Áhersla er lögð á að aðbúnaður áhafnar verði sem bestur og allir skipverjar hafa sínar eigin vistarverur og hreinlætisaðstöðu, að því er segir í tilkynningunni. Þar segir ennfremur að mesta breytingin frá eldri skipum Þorbjarnar hf. varðandi vinnslu og meðferð aflans sé sú að sjálfvirk flokkun á aflanum fer fram á vinnsludekki skipsins og frágangur aflans í fiskikör fer fram á einum stað á vinnsludekkinu. Þaðan fer aflinn í lyftum niður í lest og verður lestarvinnunni eingöngu sinnt af fjarstýrðum lyftara sem rennur á loftbita í lest skipsins. Auk þess að annast flutning og stöflun á fiskikörum verður lyftarinn notaður við losun skipsins þegar það kemur til hafnar. Skipið verður sérlega sparneytið.
Grindavík Sjávarútvegur Hafnarmál Mest lesið Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Sjá meira