Vöruúrval sem virkar á vesenispésa Boozt 24. nóvember 2023 09:45 Vöruúrvalið á Boozt er fullkomið þegar finna þarf jólagjöf fyrir vesenispésa og ekki verra þegar hægt er að nýta góð tilboð. Sumir eiga allt, aðrir vilja ekki hvað sem og enn öðrum er nánast ekki hægt að gera til hæfis. Það getur verið snúið að finna réttu jólagjafirnar fyrir alla, eða hvað? Stærsta vefverslun Norðurlandanna kemur til bjargar.
Vöruúrvalið á Boozt er fullkomið fyrir vesenispésa og ekki verra þegar hægt er að nýta góð tilboð. Úrvalið spannar allt frá tísku, sporti og snyritivörum til barna- og heimilisvara. Við tókum saman nokkrar hugmyndir að skemmtilegum gjöfum sem gætu slegið í gegn á aðfangadagskvöld og eru á sérstöku svörtudagsverði. Heilsa matur og heimili Pizzaskerari fyrir hjólafólk. Við þekkjum öll einhver sem eru dugleg að hjóla eða langar að vera dugleg að hjóla og finnst pizzur góðar. Það eru miklar líkur á að þeim þyki pasta líka gott. Upphífingastöng gæti þessvegna átt vel við fyrir slíkan nautnasegg og mögulega Polar hjartsláttamælir en hvort sem viðkomandi gerir meira af því að hjóla eða borða pizzur þá er þetta pizzahjól stórskemmtileg gjöf. Fjölnota umhverfisvænn eyrnapinni. Eyrnapinnar eru eitthvað sem næstum allir nota nánast á hverjum degi og magnið af eyrnapinnum sem fara í ruslið svakalegt. Fjölnota eyrnapinni er því frábær gjöf, bæði fyrir viðtakandann og fyrir jörðina. Og fyrst við erum farin að hreinsa úr eyrum mætti bæta nefhárasnyrti í pakkann líka og þá er Loreal jóladagatal tilvalið til að stytta snyrtipinnum biðina eftir jólunum. Taflborð er glæsileg gjöf fyrir hugsuði og alla sem eru mikið fyrir heilaleikfimi. Það tilheyrir líka jólunum að grípa í hverskonar spil og gaman að skora á fjölskyldumeðlimi í skák. Svo eru taflborð svo mikið stofustáss. Talandi um stofustáss þá er heimilisflokkurinn hjá Boozt stútfullur af fallegum vörum eins og viðar moominálfurinn frá Boyhood sem er svo sætur jólapakki og kristalla kerti sem eiga að stuðla að jákvæðri orku á heimilinu. Þegar kertin hafa brunnið niður kemur kristallinn innan í þeim í ljós. Kósýpakkar klikka sjaldnast Jólanáttföt fyrir alla fjölskylduna eru svo fyndin að þau geta ekki klikkað sem jólagjöf. Þau ýta líka undir kósýstemninguna sem við viljum hafa á jólunum og rólegheit þar sem fjölskyldan er öll saman eins klædd. Ef afi er of kulsækinn til að vera bara á náttfötum allan daginn má bæta þykkum og mjúkum náttslopp í pakkann hans. Annað sem væri sniðugt fyrir afa er Les Deux sokkadagatal sem inniheldur 24 pör af gæðasokkum. Krakkarnir fá eitthvað sniðugt Það fullkomnar jólin að sjá gleðina hjá litlu krökkunum þegar þau opna pakkana sína. Í barnavöruflokknum á Boozt er frábært úrval af fallegum gjöfum fyrir yngsta fólkið, til dæmis Lego - Harry Potter fyrir galdrakrakka og þá er skemmtilegt að telja niður í jólin með Playmo jóladagatali. Fyrir þau sem eru byrjuð í skólanum er flott að fá endurskin regnhlíf á skólatöskuna og þar sem Jólakötturinn er löngu hættur að sýna klærnar er hann líka kjörinn undir tréð. Fyrir ströngu tískuklöggurnar Tískudeildin á Boozt er stútfull af glæsilegum fatnaði fyrir öll tækifæri svo það er lítið mál að finna fallega flík, jafnvel handa vesenispésum. En ef viðkomandi á þegar troðfullan fataskáp og okkur dettur ekkert í hug til að bæta þar við gæti þó flottur Brixton hattur smellpassað í þennan pakka eða gæjalegur herra hringur. Það er líka tilvalið að gefa tískumeðvituðum gufuvél til að slétta fötin sín eða skipulagstöskur til að nota á ferðalögum. Skipulagstöskurnar eru sniðugar til að vel fari um fötin í ferðatöskum og það á vel við tískulögguna. Ef við erum farin að velja gjöf fyrir ferðalang þá er ferðahleðslutæki líka mjög sniðug jólagjöf. Svörtudagstilboðin eru í fullum gangi. Nú er því tækifæri til að gera frábær jólagjafakaup.
Jól Verslun Tíska og hönnun Hús og heimili Mest lesið Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Frumsýning á Vísi: „Sýna fólki hver Bubbi er í raun og veru“ Bíó og sjónvarp Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið Menning Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Lífið Stiklusúpa: Allt það helsta sem kynnt var á Game awards Leikjavísir Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Lífið Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Fleiri fréttir Hröð og skemmtileg rússíbanareið EKOhúsið sér um umhverfisvænu jólagjafirnar Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Samsæri á Paradísareyjunni Bjóða upp á jólakaffi allar helgar fram að jólum Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Snörp og áhrifamikil bók Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Vestfirsk náttúra skapar dulúð í nýjustu bók Margrétar S. Höskuldsdóttur Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Útreiðartúrinn leiðir lesendur inn í flókið net fjölskyldu, vináttu og leyndarmála Himnesk rúmföt úr egypskri bómull Nóvella sem leiðir lesandann inn í söguna á nýjan hátt Uppselt á stórtónleika Bubba – aukatónleikar fara í sölu á morgun Þegar vitvél fær spurningu um nasisma og allt fer í háaloft The Barricade Boys koma til Íslands með Broadway Party Nýtt lúxushótel við svarta strönd býður upp á kyrrð og fegurð Breyta bíóinu í risastórt skemmtisvæði í tilefni afmælis „Nýju hverfin eintómar stafsetningarvillur“ Sjá meira