GusGus kom, söng og sigraði Jónas Sen skrifar 21. nóvember 2023 09:00 Tónleikar GusGus í Eldborg í Hörpu laugardaginn 18. nóvember. Jónas Sen Tveir hljóðfæraleikarar eru að spila í krá í villta vestrinu, annar á kontrabassa og hinn á píanó. Inn á krána gengur illilegur náungi með alvæpni. Bassaleikarinn segir þá við píanóleikarann: „Það er vondur maður að koma... spilaðu í molltóntegund!“
Þessi mynd kom upp í hugann á tónleikum GusGus í Eldborg í Hörpu á laugardagskvöldið. Ég held að hvert einasta lag á dagskránni hafi verið í moll. Mollinn er drungalegri en dúrinn, og tónlist GusGus var skuggaleg. En á góðan hátt; hún var ávallt grípandi, bassinn flottur, takturinn eggjandi og hljómarnir sem flutu yfir létu vel í eyru. Stuðið á tónleikunum var þvílíkt að enginn sat kyrr. Fólk bara dansaði með. Tólfta platan á næstum þrjátíu árum GusGus gaf nýverið út tólftu breiðskífuna sína, DanceOrama og á tónleikunum voru flutt nokkur lög af henni. Þar á meðal var Unfinished Symphony, eða Ófullgerð sinfónía. Hljómagangurinn var óvanalegur og lagið fór eitthvert allt annað en maður bjóst við í byrjun. Það endaði líka furðulega, alveg fyrirvaralaust. Þannig séð var það ófullgert. Líklega er lagið óður til danstónlistarinnar á níunda áratugnum, það er a.m.k. ákveðin nostalgía í því. En það er skemmtilegt og grípandi, enda var því ákaft fagnað á tónleikunum af æstum áheyrendunum. Sveitt stemning DanceOrama er flott plata, en tónlistin á henni hljómaði ennþá betur í lifandi flutningnum á tónleikunum. Þannig er það oft. Plötur eru svo gerilsneyddar í dag, og tónlist GusGus er fyrst og fremst sveittur seiður sem ekki er annað hægt en að dansa við. GusGus hefur tekið nokkrum breytingum í gegnum tíðina, sem er orðin býsna löng, næstum því þrjátíu ár. Núverandi meðlimir eru Daníel Ágúst Haraldsson, Margrét Rán Magnúsdóttir og Birgir Þórarinsson. Þau tvö fyrstnefndu sungu í flestum lögunum og Birgir stjórnaði raftónlistinni. Myrk og sexí Hljóðfæraleikurinn var aldrei lifandi, hið eina sem var á lífi var söngurinn. Um hvað var sungið skipti ekki höfuðmáli, aðalatriðið var hvernig raddirnar blönduðust við tölvutónlistina. Heildarmyndin var afskaplega sannfærandi, myrk og sexí. Þetta voru skemmtilegir tónleikar. Flutningurinn hjá Daníel og Margréti var fyrirtaksgóður. Daníel er mikill sviðsmaður og hann dansaði eiginlega allan tímann. Það var augnayndi. Margét var innhverfari, jafnvel dálítið vélræn, sem féll fullkomlega að köldum rafhljómunum og miskunnarlausum bassatónunum. Ég man eftir tónleikum GusGus á Nasa fyrir mörgum árum síðan. Þeir voru líka frábærir. Söngkonan þá, sem ég man ómögulega hver var, kvaddi tónleikagesti í lokin með því að segja: „Við erum GusGus... og þið eruð geðveik!“ Ég held að það sama hafi alveg átt við núna. Stemningin á tónleikunum var svo sannarlega tryllt. Niðurstaða: Afar vel heppnaðir og skemmtilegir tónleikar.
Gagnrýni Jónasar Sen Tónlist Tónleikar á Íslandi Harpa Mest lesið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Jólagjöf ársins er stóllinn sem getur allt nema flogið Lífið Brostnar væntingar á Frostrósum Gagnrýni Besta jólagjöfin að sjá bata foreldranna Lífið Áreittar í sundi fyrir það að vera hinsegin Menning Guðmundur „ofpeppaðist“ og reif sig á kassann Lífið „Í stórgróða“ að eyða jólunum á Tene Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Dagbók móður: „Það var eins og þeir sæju eitthvað sem ég sá ekki” Áskorun Ellen Margrét og Arnmundur orðin hjón Lífið Fleiri fréttir Brostnar væntingar á Frostrósum Jólakötturinn hvæsti á tónleikagesti Bríet olli vonbrigðum Helgi Björns tryllti lýðinn á 40 ára afmæli Stúlkan með nálina: Hver gerir svona kvikmynd? Ástkona njósnarans skildi eftir sig sjóðheit bréf Efni sem veldur uppköstum, yfirliðum og eilífri æsku The Bikeriders: Hvenær komum við í flugeldaverksmiðjuna!? Sjá meira