Kvikugangur færir sig í átt til sjávar sem gæti þýtt sprengigos Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 11. nóvember 2023 05:34 Surtsey myndaðist í neðansjávargosi í nóvember 1963, þar sem fyrir var um 130 m sjávardýpi. Framan af, meðan sjór komst í gíginn, tókust á vatn og glóandi hraunbráð með miklum sprengingum sem mynduðu gosösku og gjall. Getty/Corbis Miklar breytingar hafa orðið á skjálftavirkninni sem mælst hefur við Sundhnjúkagíga og aflögun sem mælst hefur á Reykjanesskaga. Náttúruvársérfræðingur Veðurstofu Íslands tjáði fréttastofu í nótt að kvikugangurinn virtist vera að teygja sig í suðvestur.
Gangurinn, sem sérfræðingar Veðurstofunnar telja innihalda umtalsvert meira magn kviku en sást í eldgosunum við Fagradalsfjall, teygir sig undir Grindavíkurbæ. Nákvæmlega hve langt er óljóst en af jarðskjálftagögnum virðist hún teygja sig út í sjóinn suðvestur af Grindavík. Skjálftar síðustu 48 klukkustundir. Græna stjarnan þýðir skjálfti stærri en þrír.Veðurstofa Íslands Eldgosin sem landsmenn hafa kynnst á svæðinu undanfarin ár hafa stundum verið nefnt túristagos. Staðsetning þeirra hefur þótt afar heppileg og fólk lagt leið sína til að bera gosið augum úr töluverðu návígi. Fari svo að sprunga opnist í sjó og gjósi yrði birtingarmyndin allt önnur. Þá yrði um sprengigos að ræða en ekki hraungos eins og við Fagradalsfjall. Fjallað er um sprengigos á Vísindavef Háskóla Íslands í grein eftir fjóra reynda sérfræðinga á sviðinu, þá Ármann Höskuldsson eldfjallafræðing, Magnús Tuma Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði, Guðrúnu Larsen jarðfræðing og Þorvald Þórðarson eldfjallafræðing. Þar er Surtseyjargosið nefnt sem dæmi um sprengigos. Rétt er að hafa í huga hin stöðugu óvissu varðandi skjálftavirkni og eldgos. Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur hefur bent á möguleikann á að kvika frá Krýsuvík gæti gosið upp í Reykjavík. „Sprengigos sem verða þegar kvika í gosrás eða gosopi kemst í snertingu við vatn, kallast tætigos á íslensku. Ein gerð þeirra er kennd við Surtsey og goshættina sem ríktu þegar eyjan reis úr hafi.“ Hátt hlutfall smárra korna eykur varmaflutning til gosmakkarins og hefur þau áhrif, að hann rís hærra í andrúmsloftinu en ella. Þannig getur basísk kvika sem kemst í snertingu við vatn hæglega myndað efnisríkan gosmökk sem rís í 10-20 kílómetra hæð, en hefði að öðrum kosti runnið sem hraun. „Í tilvikum þar sem súr, gasrík kvika kemst í snertingu við vatn, er ekki óalgengt að gjóskuskýin nái 6-20 kílómetra hæð.“ Eins og í öðrum gosum er samband milli hæðar gosmakkar og kvikuuppstreymis. Pælt í öllum mögulegum útkomum „Hæð makkarins fer einnig eftir hlutfalli vatns og kviku, þannig að hann rís kröftuglega ef hlutfallið vatn/kvika er á bilinu 0,1-0,2. Ef hlutfallið verður öllu hærra, er hætt við að gosmökkurinn falli saman, þar sem blandan er orðin köld og þung.“ Í mars 2021 var skjálftavirkni á svæðinu milli Keilis og Fagradalsfjalls og sérfræðingar pældu í öllum mögulegum útkomum. Meðal annars hvað myndi gerast ef gysi í sjónum. „Við verðum bara að reyna að horfa á allt sem er mögulegt og það er náttúrulega alveg mögulegt að gangurinn gangi þarna áfram, opnist þá út í sjó og það komi upp sprengigos, sagði Bergrún Arna Óladóttir, gjóskulagafræðingur á Veðurstofu Íslands við RÚV. Það myndi þá leiða til öskufalls og líklegri truflun á flugumferð eins og gerðist í gosinu í Eyjafjallajökli árið 2013. Ekkert varð af sprengigosi í sjó í mars 2021 því nokkrum dögum síðar gaus í Geldingadölum og um hraungos var að ræða. Svo er sömuleiðis möguleiki á að gjósi hreinlega í Grindavík enda liggur sprungan í gegnum bæjarfélagið. Fyrir vikið var allsherjarrýming í bænum í nótt og ekki einu sinni talið öruggt fyrir viðbragðsaðila að vera í bænum. Að lokum er auðvitað sá möguleiki að það verði hreinlega ekkert gos. Þangað til í dag var talið líklegast að eldgos yrði norðvestur af Þorbirni eða við Sundhjúkagíga, austur af Þorbirni. Var miðað við skjálftavirkni í þeim pælingum en virknin hefur færst til. Sérfræðingar Veðurstofu Íslands halda áfram að rýna í gögn og funda með almannavörnum.
Eldgos og jarðhræringar Grindavík Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Innlent Fleiri fréttir Fer fram á allt að tíu ára fangelsi í Reykholtsmálinu „Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Almenningur hafi aldrei átt séns Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Sjá meira