Stakk kærasta sinn í bakið með nefháraskærum Árni Sæberg skrifar 7. nóvember 2023 16:17 Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Vesturlands. Vísir/Vilhelm Kona hefur verið dæmd til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir líkamsárás, með því að stinga kærasta sinn tvisvar eða þrisvar í bakið með skærum, sem ýmist er lýst sem nefhára- eða naglaskærum.
Í dómi Héraðsdóms Vesturlands, sem kveðinn var upp á föstudag í síðustu viku, segir að konan hafi verið ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa á heimili sínu veist að kærasta sínum með ítrekuðum hnefahöggum í andlit og líkama, stungið hann ítrekað í líkamann með skærum og einu sinni í andlitið og þegar hann flúði út af heimilinu elt hann að veitingastað í bænum og þar gert tilraun til að stinga hann í líkamann, allt með þeim afleiðingum að kærastinn hlaut fjögur sár vinstra megin á baki og á vinstri öxl, sár á vinstri olnboga og sár og mar á vinstri upphandlegg og sár á vinstri kinn. Voru í annarlegu ástandi Í dóminum segir að í samkvæmt frumskýrslu lögreglu hafi borist tilkynning um par í annarlegu ástandi á veitingastað í ótilgreindum bæ. Parið hafi verið að rífast og maðurinn væri með sjáanlega áverka. Þegar lögreglan hafi komið á vettvang hafi ákærða og brotaþoli verið utandyra og virtist ákærða vera að elta brotaþola. Þau hafi bæði verið sjáanlega ölvuð og í uppnámi. Komið hafi fram hjá konunni að kærastinn hefði veitt henni áverka og hún væri með mar á búk. Hún hafi svo farið af vettvangi eftir að lögregla var búin að ræða við hana. Lögreglan hafi svo rætt við manninn sem hafi sagt að þau væru kærustu par og hefðu verið að elda saman fyrr um kvöldið, heima hjá henni. Hún hefði ráðist á hann með höggum og stungið hann ítrekað með naglaskærum. Hann hafi kveðist ekki vita hvers vegna konan hafi gert þetta en þetta hefði gerst áður. Hann hafi flúið burt af heimili kærustunnar og farið á veitingastaðinn en ákærða síðan komið þangað. Maðurinn hafi verið nokkuð miður sín og grátið milli þess sem hann skýrði frá. Jafnframt hafi komið fram hjá manninum ónafngreindur maður og ónafngreind kona hefðu verið með þeim umrætt sinn og þau hefðu séð hvað gerðist. Manninum hafi svo ekið á gististað þar sem hann bókaði gistingu. Hann hafi gefið lögreglu heimild til að ljósmynda áverka sem voru á honum. Hann hafi verið með sjáanlega áverka á vinstri hendi og skurð eða rispur í andliti. Neitaði sök og sagðist í versta falli hafa stungið kærastann óvart Konan gaf skýrslu fyrir dómi og lýsti atvikum umrætt sinn þannig að þau hafi verið að elda á heimili hennar, hún sjálf, kærastinn og tveir gestir, karlmaður og kona. Þau hefðu neytt áfengis og kærastinn hefði verið orðinn drukkinn. Lýsti hún því að konan hefði verið stödd inni í stofu en karlinn hefði verið í eldhúsinu. Hún hefði verið inni á baði og haldið á nefháraskærum er kærastinn hefði komið að dyrunum á baðherberginu. Henni hefði orðið bylt við, hann hefði tekið í hana og eins og ýtt henni inn í herbergið við hliðina. Þau hefðu bæði dottið og hann lent ofan á henni, hún hefði tekið utan um hann og þá hefðu skærin rekist í hann. Kærastinn hefði þá hlaupið út úr húsinu og á veitingastaðinn. Þar hefði komið til einhverra ryskinga milli þeirra og lögreglan hefði svo komið og ekið henni heim. Kærastinn kannaðist ekki við ofbeldið Kærastinn gaf skýrslu fyrir dómi og kvað konuna hvorki hafa veist að honum með höggum né stungum og það væri það eina sem hann myndi frá þessu. Kvaðst hann ekki muna hverjir hefðu verið á staðnum, en konan hefði ekki ráðist að honum. Kvað hann það vel geta verið að hann hefði verið í einhverju losti umrætt sinn þar sem hann hefði lent i líkamsárás ári áður af hendi fyrrverandi kærustu. Hann hefði verið „blindhaugafullur“ og lögregla hefði tekið skýrslu af honum í því ástandi. Ekki nægilega sannað að hluta Í niðurstöðukafla dómsins segir að ef ekki nyti við annars í málinu en framburðar ákærðu og brotaþola hjá lögreglu í janúar 2021 og fyrir dómi yrði að líta svo á að ákæruvaldið hefði vart mætt þeim ríku sönnunarkröfum sem á því hvíla, fyrir ákæruatriðum eins og þau eru sett fram í ákæruskjali. Á hinn bóginn styðji nokkuð við ákæruatriði, vitnisburður vitnanna, sem voru gestkomandi umrætt kvöld í íbúð konunnar, upphafskýrslur málsins af brotaþola og þeir áverkar sem brotaþoli bar. Hvað varðar meint ítrekuð hnefahögg í andlit og líkama kærastans segir að enginn framburður fyrir dómi eða önnur gögn málsins verði talin styðja með svo afdráttarlausumhætti að ákærða hafi veitt brotaþola ítrekuð hnefahögg í andlit og líkama eins og lýst er í ákæruskjali þannig að nægi til áfellis. Konan var því sýknuð af þeim lið. Hvað varðar meinta tilraun til að stinga kærastann við veitingastaðinn segir að enginn framburður vitna renni stoðum undir það að konan hafi gerst sek um slíkt athæfi. Var hún því einnig sýknuð af þeim lið. Ekki sérlega hættuleg árás þrátt fyrir notkun vopns Varðandi ákæru fyrir sérlega hættulega líkamsárás með ítrekuðum stungum í líkama og andlit segir að þrátt fyrir að eftir því hafi verið gengið við rannsókn málsins, að minnsta kosti á síðari stigum, hafi meint árásarvopn ekki fundist. Dómurinn telji þó óhætt að ganga út frá því miðað við önnur gögn málsins að um mjög lítil skæri hafi verið að ræða sem ekki sé hægt að fullyrða að geti flokkast eitt og sér sem hættulegt vopn og að minnsta kosti sé það trauðla til þess fallið að valda stórkostlegum skaða með þeirri aðferð sem gögn málsins benda til að ákærða hafi beitt umrætt sinn. „Vitaskuld er ætíð hægt að valda miklum skaða með eggvopni og oddhvössum hlut, hvort sem það eru skærieða önnur slík áhöld, og tilviljun ein getur þar einnig ráðið. Hins vegar telur dómurinn ekki nægjanleg gögn liggja fyrir í málinu um umrædd skæri, eða um atlögu ákærðu og hvernig þessum, sem er lýst ýmist sem svokölluðum nefhára-og/eða augnháraskærum, naglaskærum eða læknaskærum, hefur verið beitt í þeirri atlögu, aðallega þó með hótunum.“ Vegna væri þessa ekki hægt að fallast á að sönnun hafi tekist um að atlaga ákærðu að brotaþola hafi falið í sér sérstaklega hættulega líkamsárás. Með vísan til framburðar gestanna tveggja og annarra gagna málsin taldi dómurinn sannað svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa að konan hafi, í átökum við kærastan þar sem hún hafi átt upptökin og ráðist á hann, af ásetningi stungið hann tvisvar til þrisvar sinnum í bak með umræddum skærum þannig að hlutust af grunnir skurðir sem eitthvað blæddi úr. Ósannað væri að ákærða hafi stungið eða skorið brotaþola með skærunum í andlit eða beint atlögum sínum með öðrum hætti að líkama brotaþola þannig að flokkað verði sem sérstaklega hættuleg líkamsárás, en allur vafi um það atriði líkt og önnur varðandi sekt ákærðu yrði metinn henni í hag. Konan var sem áður segir dæmd til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar. Þá var hún dæmd til að greiða helming af 840 þúsund króna málsvarnarlaunum og 84 þúsund króna ferðakostnaði skipaðs verjanda síns.
Dómsmál Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent Mælti sér mót við barn og réðst á það Innlent Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Innlent Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Innlent Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Fleiri fréttir Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Sjá meira
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent