Öll fáum við ákveðin verkefni í lífinu Íris Hauksdóttir skrifar 2. nóvember 2023 19:00 Edda Björk Pétursdóttir og Sóley Stefáns og Sigrúnardóttir standa fyrir námskeiðinu Skiljum (við) verkina. aðsend Edda Björk Pétursdóttir og Sóley Stefánsdóttir bera báðar mikil áföll á bakinu. Edda Björk fór ung í gegnum erfiða krabbameinsmeðferð og Sóley í glímdi við fjölþætt veikindi ásamt því að fylgja manni sínum til grafar. Þær standa nú fyrir námskeiði, ætluðu einstaklingum með skert lífsgæði.
Námskeiðið, Skiljum (við) verkina, vísar til þess hve mikilvægt og valdeflandi það er að skilja hvað verkir og verkjaboð eru, svo mögulegt sé að skilja við verkina. Sóley og Edda Björk eru báðar menntaðar í jákvæðri sálfræði, ásamt því að vera jógakennarar, markþjálfar og PRT meðferðaraðilar. Reynsla þeirra hefur ekki síður kennt þeim margt sem viðkemur streitu, áföllum og erfiðleikum. Edda Björk greindist ung með illkynja krabbamein, hún segist þakklát fyrir reynsluna.aðsend Langar að miðla af reynslu sinni Tuttugu og fjögurra ára greindist Edda Björk með mjúkvefjakrabbamein í holhönd. Æxlið var illkynja og lengi vel var óljóst hvernig það hefði dreift sér. Hún fór í kjölfarið í skurðaðgerð þar sem möguleg útkoma var handleggurinn hennar yrði fjarlægður í heild sinni. Til allrar hamingju kom ekki til þess. Þungar lyfjameðferðir ásamt aukaverkunum fylgdu í kjölfarið og kröfðust þær innlagnar á sjúkrahús í hvert sinn. Edda Björk gekkst undir tuttugu geislameðferðir og hefur síðan þá glímt við langvinna taugaverki. Hún segir tilfinningar í kjölfar svo alvarlegra veikinda mjög krefjandi. „Það að vera kippt út úr virkni er erfitt og krefst mikillar vinnu og þolinmæði. Eftir þessar áskoranir og lærdóm langar mig hjálpa öðrum með því að miðla áfram reynslu minni, þekkingu á markþjálfun, jóga fræðum og verkfærum jákvæðrar sálfræði. Ég væri ekki sú sem ég er í dag nema fyrir allt sem ég hef upplifað og er þakklát fyrir þann áfallaþroska sem ég hef náð. Öll fáum við ákveðin verkefni í lífinu og það er undir okkur komið hvernig við tökumst á við hlutina og hvernig við viljum blómstra í eigin lífi.“ Sóley tók heilsuna föstum tökum og hefur betrumbætt lífsgæði sín til muna. aðsend Aldrei sterkari en í gegnum veikindi hans Heilsuáskoranir Sóleyjar hófust strax í barnæsku þegar hún var greind með Hashimoto’s, vanvirkan skjaldkirtil. Móðir hennar hafði þá gengið með hana milli lækna í tvö ár en enginn fundið út hvað amaði að síþreytta barninu. Á endanum komst hún til innkirtlasérfræðings sem ávísaði henni skjaldkirtilslyf og nokkurt jafnvægi komst á líf Sóleyjar. „Ég bjó áfram við margskonar einkenni og þar á meðal orkuleysi, iðraólgu og langvinna stoðkerfisverki, sem hafa verið áskorun síðan.“ Sóley gekk svo í gegnum það að fylgja manninum sínum í gegnum krabbamein og andlát. Hún segist aldrei hafa verið sterkari en í gegnum veikindi hans, enda ekkert annað í boði. Eftir andlátið fór heilsan aftur að gefa sig. „Einkenni sem ég þekkti dúkkuðu upp, en nú bættust fleiri við. Vinstri öxlin varð til að mynda óstarfhæf vegna verkja og verandi grafískur hönnuður hafði það gríðarleg áhrif á starf mitt.“ Margskonar tilfinningar gerðu vart við sig Á þessum tímapunkti var ekkert annað í stöðunni en að leita allra leiða til að koma heilsunni í lag. „Ég skráði mig í ýmiskonar heilsutengt nám og get með sanni sagt að ég sé komin á mun betri stað.“ Hún viðurkennir þó að vegferðin hafi tekið á og margskonar tilfinningar gert vart við sig. „Í dag er ég þakklát fyrir þetta ferðalag og að hafa fengið að kynnast djúpum tilfinningum og aðferðum til að vinna með þær. Í kjölfarið fór ég að vinna sem heilsumarkþjálfi sem er í raun ekkert ólíkt því að vera grafískur hönnuður. Nú snýst verkefnið um að hjálpa fólki að hanna leiðina að bættari heilsu.“ Þær Sóley og Edda kynntust í sálfræðináminu þar sem þær sameinuðust í áhuga sínum á taugavísindunum og áhrifum þeirra á langvinna verki og heilsufarseinkenni. Eins og áður sagði hafa þær snúið bökum saman og kenna þessi fræði meðal annars á námskeiðum, fyrirlestrum og vinnustofum með það að markmiði að styrkja stöðu fólks með skert lífsgæði. Nánari upplýsingar um næstu viðburði má nálgast hér.
Heilsa Lífskraftur Krabbamein Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Stjúpur og fjólur það heitasta Lífið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Sjá meira