„Þar sem er búið að aflétta öllum reglum í Ungfrú Ísland ákváðum við Arnar Grant að taka æfingarnar alvarlega,“ skrifar Ásdís Rán við mynd af sér og einkaþjálfaranum Arnari Grant.
Hún segist stefna að því að rústa keppninni svo hún geti borið titlana Ísdrottningin og Ungfrú Ísland áður en hún verður fimmtug. Ásdís Rán er 44 ára.
Allar konur yfir átján ára gjaldgengar
Á dögunum var greint frá því að aldurshámarki hafi verið aflétt.
„Þetta eru frábærar fréttir því síðastliðin sjötíu og tvö ár hafa einungis konur á aldrinum átján til tuttugu og átta ára mátt keppa. Það heyrir nú sögunni til og eru konur á öllum aldri hvattar til að sækja um þátttöku. Reglurnar taka að sjálfsögðu gildi hér á Íslandi þar sem allar konur yfir átján ára geta keppt í Ungfrú Ísland,“ sagði Manúela Ósk Harðardóttir framkvæmdastjóri Ungfrú Ísland í samtali við Vísi.