Fótbolti

Ingibjörg spilaði allan leikinn í sigri Valerenga

Dagur Lárusson skrifar
Ingibjörg Sigurðardóttir í leik með Vålerenga.
Ingibjörg Sigurðardóttir í leik með Vålerenga. Vålerenga

Ingibjörg Sigurðardóttir, leikmaður íslenska landsliðsins, spilaði allan leikinn í sigri Valerenga í norsku deildinni í dag.

Ingibjörg var sem fyrr í byrjunarliði Valerenga en hún var skipuð fyrirliði liðsins í byrjun tímabils og tók við bandinu af Stine Ballesager.

Valerenga spilaði í dag við Avaldsnes og náði Valerenga forystunni á 44. mínútu þegar Stine Brekken skoraði.

Fleiri mörk voru ekki skoruð og voru lokatölur því 1-0 fyrir Valerenga sem situr eftir leikinn í öðru sæti deildarinnar með 52 stig, einu stigi á eftir Rosenborg í toppsætinu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×