McTominay hetjan á Old Trafford

Scott McTominay var hetjan í dag.
Scott McTominay var hetjan í dag. Alex Livesey/Getty Images

Scott McTominay reyndist hetja Manchester United er hann snéri taflinu við gegn Brentford í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Það var Mathias Jensen sem kom gestunum yfir á 26. mínútu eftir smá vandræðagang í vörn United. Skot hans á markið var nokkuð gott, en líklega hægt að setja spurningamerki við Andre Onana í marki United.

Heimamenn reyndu hvað þeir gátu til að jafna metin, en lengst af leit út fyrir að það myndi ekki ganga. Það var ekki fyrr en á þriðju mínútu uppbótartíma síðari hálfleiks að boltinn barst inn á teig þar sem Scot McTominay tók hann niður og fann netið með hnitmiðuðu skoti.

Það var svo með síðustu snertingu leiksins sem Scot McTominay var aftur á ferðinni. Liðið fékk þá aukaspyrnu við miðlínuna og boltanum fleygt inn á teig. Harry Maguire skallaði boltann fyrir markið þar sem McTominay var mættur og tryggði heimamönnum dramatískan 2-1 sigur.

Manchester United er nú með 12 stig í níunda sæti deildarinnar eftir átta leiki, fimm stigum meira en Brentford sem situr í 14. sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira