Hillary Clinton gestur Ragnars og Yrsu á Iceland Noir Lovísa Arnardóttir skrifar 14. september 2023 23:19 Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir stofnuðu Iceland Noir fyrir tíu árum. Rithöfundurinn, Fyrrverandi utanríkisráðherrann og forsetaframbjóðandinn Hillary Clinton verður gestur á sérstökum viðburði degi eftir að hátíðinni lýkur í ár. Vísir/Vilhelm og EPA Yrsa Sigurðardóttir segir Iceland Noir ekki lengur litla glæpahátíð. Sérstakur viðburður verður degi eftir að hátíðinni lýkur í ár þar sem Hillary Clinton og Louise Penny ræða pólitíska spennusögu sína, Ríki óttans. Viðburðurinn fer fram þann 19. nóvember.
Hillary Rodham Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi, kemur fram í Hörpu í tilefni af bókmenntahátíðinni Iceland Noir í nóvember. Með Hillary verður kanadíski metsöluhöfundurinn Louise Penny en saman skrifuðu þær bókina Ríki óttans [e. State of Terror] sem er pólitísk spennusaga. „Miðasalan gengur ótrúlega vel. Við bjuggumst reyndar alveg við því,“ segir Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur og að hún telji líklegt að það seljist upp um helgina. Toguðu í alla spottana „Hátíðinni lýkur á laugardeginum þannig þetta verður svona hliðarviðburður. Svo fannst okkur, af því að þetta er Hillary Clinton, að við þyrftum að fá einhvern mjög fínan sal og tókst að fá Eldborg,“ segir Yrsa létt. Hún segir í raun hafa gengið ótrúlega vel að fá Clinton á hátíðina en viðurkennir að þau hafi togað í alla þá spotta sem hægt var að toga í til að tryggja komu Clinton á hátíðina. „Hún verður á Írlandi þessa helgi í opinberri heimsókn og tekur stopp á leiðinni heim. Þær tvær eru að koma saman á sviði í fyrsta sinn. Þær skrifuðu þessa bók saman sem varð auðvitað metsölubók,“ segir Yrsa sem ekki hefur lesið bókina sjálf en segir hana næsta á listanum. Eftir að þær hafa Hillary og Louise hafa talað mun Eliza Reid, forsetafrú, ræða við þær um bókina og lífshlaup þeirra. Yrsa er annar stofnenda Iceland Noir en hinn er rithöfundurinn Ragnar Jónasson. Hún segir að löngu sé orðið uppselt á hátíðina og langur biðlisti að komast að. Hún segir dagskrána mjög þétta og marga gesti væntanlega. „Við höfum haldið sjö hátíðir á síðustu tíu árum og hefur tekist að skapa okkur þannig sess að við getum fengið stór nöfn á hátíðina,“ segir Yrsa en meðal gesta á hátíðinni í ár eru Dan Brown, Neil Gaiman og Irvine Welsh. „Irvine skrifaði Trainspotting og hann verður DJ í lokapartýinu.“ Ekki bara útlenskir gestir Hátíðin einskorðast ekki aðeins við glæpahöfunda því meðal gesta verða einnig innlendir og erlendir gestir. Til að mynda leikarinn Richard Armitage og Ólafur Darri. „Útlendingarnir elska það. Ólafur Darri er risi erlendis. Þetta hefur breyst frá því að vera lítil glæpahátið. Við vorum eiginlega komin í gegnum alla stóru glæpahöfundana og erum búin að útvíkka þetta. Það eru svo margar leiðir til að segja sögur,“ segir Yrsa að lokum. Miðasala á viðburðinn hófst í kvöld á tix.is.
Bókmenntir Bókaútgáfa Harpa Tengdar fréttir Valdi að verða sextug í stað þess að flytja til Eþíópíu Yrsa Sigurðardóttir, glæpasagnadrottning og margfaldur metsöluhöfundur, fagnar sextugsafmæli í dag. Hún segir ekkert planað í kvöld, annað en að skrifa næstu bók. Hún ætlar að halda upp á stórafmælið með pompi og prakt í febrúar að jólabókaflóði loknu og segist ekki geta beðið eftir að sjá Kulda, samnefnda mynd sem byggir á bók hennar og kemur í kvikmyndahús í næstu viku. 24. ágúst 2023 16:50 Skulfu á beinunum á forsýningu Kulda Fjöldi fólks skalf á beinunum á forsýningu íslensku hrollvekjunnar Kulda í Smárabíói í gærkvöldi. Kvikmyndin er byggð á samnefndri metsölubók Yrsu Sigurðardóttur frá árinu 2012. 1. september 2023 09:58 Íslenskar bókmenntir í bullandi útrás Fyrri hluti úthlutunar til þýðinga á íslenskum bókum fyrir þetta ár hafa nú farið fram. 54 verk hljóta styrki að upphæð 9 milljónir króna til þýðinga á 15 tungumál. 23. maí 2023 11:47 Ragnar Jónasson hlaut Palle Rosenkrantz -verðlaunin Ragnar Jónasson tók í dag við Palle Rosenkrantz -verðlaununum fyrir bestu þýddu glæpasöguna í Danmörku á Krimimessen sem fram fer í fangelsinu í Horsens. Þau fær hann fyrir þríleik sinn um lögreglukonuna Huldu, Dimmu, Drunga og Mistur. 25. mars 2023 16:22 Mest lesið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira
Valdi að verða sextug í stað þess að flytja til Eþíópíu Yrsa Sigurðardóttir, glæpasagnadrottning og margfaldur metsöluhöfundur, fagnar sextugsafmæli í dag. Hún segir ekkert planað í kvöld, annað en að skrifa næstu bók. Hún ætlar að halda upp á stórafmælið með pompi og prakt í febrúar að jólabókaflóði loknu og segist ekki geta beðið eftir að sjá Kulda, samnefnda mynd sem byggir á bók hennar og kemur í kvikmyndahús í næstu viku. 24. ágúst 2023 16:50
Skulfu á beinunum á forsýningu Kulda Fjöldi fólks skalf á beinunum á forsýningu íslensku hrollvekjunnar Kulda í Smárabíói í gærkvöldi. Kvikmyndin er byggð á samnefndri metsölubók Yrsu Sigurðardóttur frá árinu 2012. 1. september 2023 09:58
Íslenskar bókmenntir í bullandi útrás Fyrri hluti úthlutunar til þýðinga á íslenskum bókum fyrir þetta ár hafa nú farið fram. 54 verk hljóta styrki að upphæð 9 milljónir króna til þýðinga á 15 tungumál. 23. maí 2023 11:47
Ragnar Jónasson hlaut Palle Rosenkrantz -verðlaunin Ragnar Jónasson tók í dag við Palle Rosenkrantz -verðlaununum fyrir bestu þýddu glæpasöguna í Danmörku á Krimimessen sem fram fer í fangelsinu í Horsens. Þau fær hann fyrir þríleik sinn um lögreglukonuna Huldu, Dimmu, Drunga og Mistur. 25. mars 2023 16:22