Ólíklegt að Kristján nái að veiða allan kvótann úr þessu Lovísa Arnardóttir skrifar 5. september 2023 13:29 Kristján Loftsson, til vinstri, má veiða allt að 161 langreyði. Sverrir Daníel Halldórsson, líffræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun, til hægri, telur ólíklegt að hann nái því vegna lélegs veðurs á þessum árstíma og lélegra birtuskilyrða. Samsett Líffræðingur við Hafrannsóknarstofnun telur ólíklegt að Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf., nái að veiða þann hval sem hann má veiða samkvæmt leyfi. Veður og birtuskilyrði muni hafa áhrif. Hann segir langreyðar ekki í útrýmingarhættu á norðurhveli jarðar. „
Það er eitthvað farið að minnka núna en aðalmálið á þessum tíma er veður, sem hamlar veiðum, og birta. Þetta eru orðnir stuttir dagar. En það er hellingur af hval á svæðinu, eða yfirleitt á þessum ársíma,“ segir Sverrir Daníel Halldórsson, líffræðingur við Hafrannsóknarstofnun, og að helstu fæðisvæðin séu við vestanvert og suðvestanvert landið. Hann segir að misjafnt sé hvenær hvalirnir færa sig suður á bóginn en að það sé oft í lok ágúst en geti verið alveg fram í október. „En það sjást langreyðar allt árið,“ segir Sverrir en að erfitt sé að meta fjölda við Íslandsstrendur á veturna því ekki séu gerðar veturtalningar vegna aðstæðna á hafi. Kristján Loftsson hefur heimild til að veiða að hámarki 161 langreyðar árlega samkvæmt reglugerð sem Kristján Þór Júlíusson, þáverandi sjávarútvegsráðherra, setti um veiðarnar árið 2019. Ný reglugerð var sett í síðustu viku, af matvælaráðherra, um veiðarnar og tilhögun þeirra. „Það er ólíklegt að hann nái því úr þessu. Það er útilokað út af veðurskilyrðum,“ segir hann en erfitt að segja til um það hverju hann nær. Verða allt að 100 ára Hann segir að í Norður-Atlantshafi séu alls um 35 þúsund langreyðar. Hann segir langreyðar oft vera allt að þrjú saman í hóp. Það geti verið fjölskylda eða bara dýr sem hafi hópað sig saman. Dýrin verði allt að 100 ára gömul. „Þetta er svipuð lífslengd og hjá manninum. Þær verða kynþroska við átta ára aldur og það er svona annað hvert ár sem þær bera, að meðaltali. Alveg fram undir það síðasta. Það virðist ekki vera nein tíðahvörf,“ segir Sverrir léttur. Ekki dýr í útrýmingarhættu Hann segir mikilvægt að fólk viti að á norðurhveli sé staða stofns langreyða ekki sú sama og á suðurhveli. Þær séu ekki í útrýmingarhættu á norðurhveli jarðar en á suðurhveli sé stofninn í viðkvæmri stöðu. Því tali sum samtök um að langreyðar séu í útrýmingarhættu. Sverrir telur rétt að aðgreina stofn á suður- og norðurhveli því stofninn sé mjög misjafnt á þessum tveimur stöðum. „Þetta eru ekki dýr í útrýmingarhættu en vinnubrögðin eru þannig hjá CITES að þau setja alla tegundina undir sama hátt þótt að aðstæður stofna séu misjafnar á ólíkum stöðum,“ segir Sverrir en CITES er alþjóðasamningur um verslun með villt dýr og plöntur í útrýmingarhættu sem bannar viðskipti með hvalaafurðum milli flestra þjóða heims. Ísland hefur gert fyrirvara við viðauka með samningnum vegna þeirra tegunda sem veiddar eru við Íslandsstrendur. Spurður hvað honum finnist um mótmælin um borð í hvalveiðiskipunum segir hann ekkert við þau koma á óvart en að það komi heldur ekki á óvart að veðrið hamli veiðum, miðað við árstíma. „Það er búið að vera leiðindaveður á miðunum og spáir ekkert vel.“
Hvalir Hvalveiðar Reykjavík Sjávarútvegur Tengdar fréttir Furðar sig á að sjúkralið taki við skipunum frá lögreglu Stuðningsmenn tveggja kvenna sem eru hlekkjaðar við tunnur í möstrum hvalveiðiskipa í Reykjavíkurhöfn segjast hafa hringt í ítrekað á sjúkrabíl vegna ástands annarrar þeirra en án árangurs í morgun. Vinur þeirra furðar sig á því að sjúkralið svari til lögreglunnar. 5. september 2023 10:12 „Ef þær koma niður fá þær að drekka og borða“ Lögreglan segist hafa boðið mótmælendum á hvalveiðiskipum Hvals bæði mat og drykk, en aðeins ef þær koma niður. Hann segir lögregluna ekki með neinar aðgerðir skipulagðar vegna mótmælanna. Skipin halda ekki út til veiða í dag vegna veðurs. 5. september 2023 09:07 Bein útsending: Mótmælendurnir enn í tunnunum Tveir mótmælendur sem hlekkjuðu sig fasta við tunnur á mastri tveggja hvalveiðiskipa í Reykjavíkurhöfn í gærmorgun er komnur úr skipunum. Vísir fylgist með málinu í beinni útsendingu. 5. september 2023 08:37 Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Sjá meira
Furðar sig á að sjúkralið taki við skipunum frá lögreglu Stuðningsmenn tveggja kvenna sem eru hlekkjaðar við tunnur í möstrum hvalveiðiskipa í Reykjavíkurhöfn segjast hafa hringt í ítrekað á sjúkrabíl vegna ástands annarrar þeirra en án árangurs í morgun. Vinur þeirra furðar sig á því að sjúkralið svari til lögreglunnar. 5. september 2023 10:12
„Ef þær koma niður fá þær að drekka og borða“ Lögreglan segist hafa boðið mótmælendum á hvalveiðiskipum Hvals bæði mat og drykk, en aðeins ef þær koma niður. Hann segir lögregluna ekki með neinar aðgerðir skipulagðar vegna mótmælanna. Skipin halda ekki út til veiða í dag vegna veðurs. 5. september 2023 09:07
Bein útsending: Mótmælendurnir enn í tunnunum Tveir mótmælendur sem hlekkjuðu sig fasta við tunnur á mastri tveggja hvalveiðiskipa í Reykjavíkurhöfn í gærmorgun er komnur úr skipunum. Vísir fylgist með málinu í beinni útsendingu. 5. september 2023 08:37