Heineken tilkynnti í fyrra að fyrirtækið hefði hætt sölu Heineken bjórsins í Rússlandi og myndi hætta allri framleiðslu í landinu.
Nú hefur það tilkynnt að kaupandi hafi fundist að allri starfseminni í Rússlandi, sem telur sjö brugghús og 1.800 starfsmenn. Kaupandinn Arnest, stór framleiðandi á sviði úðabrúsa, greiðir aðeins eina evru fyrir. Heineken gerir ráð fyrir því að heildartap af því að hætta framleiðslu í Rússlandi sé um 300 milljónir evra.
„Nú höfum við klárað brottför okkar frá Rússlandi. Nýjustu vendingar sýna fram á þær veigamiklu áskoranir sem mæta stórum framleiðslufyrirtækjum sem yfirgefa landið. Þó að ferlið hafi tekið mun lengri tíma en við höfðum gert ráð fyrir, þá tryggja þessi viðskipti lífsviðurværi starfsmanna okkar og gerir okkur kleift að yfirgefa landið á ábyrgan máta,“ er haft eftir Dolf van den Brink, framkvæmdarstjóra og stjórnarformanni Heineken.
Arnest hefur skuldbundið sig til þess að veita öllum starfsmönnunum 1.800 atvinnu til þriggja ára hið minnsta.
Hluti starfseminnar keyptur af Íslendingum
Starfsemi Heineken í Rússlandi hefur áður ratað í fréttir hér á landi. Árið 2002 keypti Heineken bruggverksmiðjuna Bravo í Sankti Pétursborg af þeim Björgólfi Guðmundssyni, Björgólfi Thor, syni hans, og Magnúsi Þorsteinssyni. Kaupverðið var um 41 milljarður króna, sem á núvirði eru um 110 milljarðar.
Mennirnir þrír högnuðust gríðarlega á sölunni og byggðu mikið viðskiptaveldi á gróðanum. Björgólfsfeðgar eignuðust meðal annars stóran hluta Landsbankans skömmu eftir söluna og Magnús flugfélagið Atlanta, ásamt hópi fjárfesta.
Björgólfur Thor er enn ríkasti Íslendingurinn.