Tímarnir hafa breyst og hefur fjölbreytileikinn tekið við á jörðu niðri sem og í háloftunum. Óhætt er að segja að fjölgunin af karlpeningnum í aftara farrými flugvélarinnar sé mikið gleðiefni af mörgum ástæðum.
En í grein Fálkans í mars 1947 segir: „Hlutverk flugfreyjunnar er yfirleitt það að sjá um að farþegunum líði eins vel og hœgt er. Þær hlynna að þeim og veita þeim hressingu og spara þeim ýmis ómök. Starf þeirra krefst því málakunnáttu, aðlaðandi framkomu og nokkurrar kunnáttu í sem flestu, auk þess sem æskilegt er að flugfreyjan sé lagleg og snotur í vexti, svo karlmennirnir geti haft hana til augnayndis og konurnar til þess að öfunda hana.“
![](https://www.visir.is/i/DF5BF6942EDD55C4EDF77A62CFB01B2DDD2125E419D371CA49641B2E5DB72B1C_713x0.jpg)
Þá kom einnig fram að flugfreyjustarfið væri eina starfið á Íslandi þar sem væri skilyrði að flugfreyjan væri ógift. Samkvæmt ráðningarsamningi mátti hún vera lofuð en skylt að hætta í starfinu um leið og hún væri búin að ganga í hjónaband, nema það væri á einhvern hátt hagur flugfélagsins að hún gifti sig.
Himininn er rauður og blár
Flugþjónar eru ólíkir eins og þeir eru margir en það sem aðskilur þá er einkennisklæðnaður, rauður eða blár.
Lífið á Vísi setti saman lista af flottum flugþjónum sem starfa innan raða íslensku flugfélaganna, Play og Icelandair.
En hvað er það sem heillar þessa huggulegu menn við starfið?
Fljúgandi listamaður
Álfgrímur Aðalsteinsson er 26 ára tónlistarmaður, sviðslistanemi og flugþjónn á sumrin hjá Icelandair. Hann hefur nú sest aftur á skólabekk við Listaháskóla Íslands þar sem hann er á öðru ári á sviðshöfundabraut.
![](https://www.visir.is/i/C2F85E6B090F09CB4F38D8B36814FBCEEFF6912E78B915E10E15C57FABE5AB65_713x0.jpg)
Að sögn Álfgríms eru samstarfsfélagarnir mest heillandi við starfið sem er ólíkt dag frá degi.
![](https://www.visir.is/i/91897DBC09EC0D96B34DF59549EA5CB03F2023EE62C154A29C80E03A6AE130AC_713x0.jpg)
Vinalottó í fluginu
Flugþjónninn og einkaþjálfarinn Antoine Hrannar Fons hefur starfað sem flugþjónn hjá Icelandair frá árinu 2014.
„Það er frábært að takast á við nýtt ævintýri a hverjum degi með fólki sem maður hefur kannski aldrei unnið með áður eftir öll þessi ár. Enginn dagur er eins og ég hef eignast fullt af ótrúlega góða vinum.“
![](https://www.visir.is/i/9D2CB45080874D63556E43CE07730A6A34F458564D7E4ABFF2A161BCF7F8590F_713x0.jpg)
![](https://www.visir.is/i/751F71579520C3DDE48A13AA10E442B0F8B2D75996453FC3C508A85A8258018D_713x0.jpg)
Sautján ára reynsla
Páll Magnús Guðjónsson hefur starfað sem flugþjónn í rúmlega sautján ár. Hann byrjaði í bransanum hjá Iceland Express árið 2007 áður en hann hóf störf hjá Icelandair. Samhliða flugþjónastafinu starfar hann sem Uniform manager félagsins og hefur því umsjón með einkennisklæðnaði flugfólks.
„Ég heillast af því að enginn dagur sé eins, ferðalögunum, að kynnast nýju fólki og hinum óreglulega vinnutíma.“
![](https://www.visir.is/i/53D00C3FE3C984A1BD5D225D6732DA57984225B6C23400CBAAC7EA8F9CCFF3FD_713x0.jpg)
![](https://www.visir.is/i/73AFE1EDE7A7D5DDA17C8BCE6E11BD182D7B93C1E950A30CD91E593523A2CFF6_713x0.jpg)
Enginn mánuður eins
Hinn þrítugi Gilbert Bryon hefur starfað hjá Play frá upphafi. Fyrir það starfaði hann hjá Wow air og lauk í framhaldinu atvinnuflugnámi.
„Work hard PLAY hard, er það ekki?,“ segir Gilbert Bryon og hlær.
„Það sem heillar mig við starfið er allt það frábæra fólk sem ég fæ að vinna með og kynnast. Ferðalög og óreglulegur vinnutími þar sem engin mánuður er eins,“ segir Gilbert.
„Þrátt fyrir langa vinnudaga þá fer maður í gegnum þá með bros á vör.“
![](https://www.visir.is/i/2D5B0FBD266F8BA528A7ABE81DA7EE519847B15162D6E0DBBE13882941AAB1F1_713x0.jpg)
![](https://www.visir.is/i/EB0B1A43A77CF0D0F7F367228D46CC0053C10942D6C9D16733A838380C1782D0_713x0.jpg)
Einkaþjálfun og flugþjónastarfið góð blanda
Vikar Sigurjónsson er fimmtugur flugþjónn og einkaþjálfari búsettur í Reykjanesbæ. Hann segist heillaður af starfinu fólksins vegna, bæði farþegum sem og samstarfsfólki. Hann segir þó ákveðinn galla fylgja því að vinna í stórum og skemmtilegum hópi.
„Í þessari vinnu er maður að hitta nýja samstarfsfélaga á hverjum vinnudegi sem maður fær svo kannski ekki flug með aftur fyrr en eftir einhverja mánuði, jafnvel ár. Það er kostur að vinna með stórum hópi af frábæru fólki en gallinn að hitta fólkið sjaldan,“ segir Vikar. Hann nefnir sem dæmi að undanfarna þrjá mánuði hafi hann aðeins þrisvar flogið aftur með sama vinnufélaga.
„Svo er það klisjan... að ég elska að ferðast,“ bætir hann við.
Vikar hefur starfað við líkamsrækt síðastliðin 26 ár. Honum þótti kominn tími til að víkka sjóndeildarhringinn og ákvað að sækja um.
„Ég rak Lífsstíl Líkamsrækt í Keflavík í 19 ár sem lokaði 1. mars síðastliðinn. Meðfram flugþjónastarfinu er ég að þjálfa í Sporthúsinu í Reykjanesbæ sem einkaþjálfari og hóptímakennari í Spinning, ButtLift, pallatímum, auk annarra tíma, ásamt því að vera með ButtLift í fjarþjálfun.“
![](https://www.visir.is/i/DE57926F85B9670129450CA1D41D5108A231B77297D285F0DA381E171752C25F_713x0.jpg)
![](https://www.visir.is/i/9FBA01DD49FC9CB98C47E486EC11545ADBA7F3935437276AD16C9E44B8FC6B82_713x0.jpg)
Vinahópurinn stækkar
Flugþjóninn Egill Gauti Viðarsson, hóf störf hjá Play í sumar. Hann segist heillaður af stöðugu ferðalagi sem einkenni starfið.
„Ég er að kynnast nýju fólki á hverjum degi svo vinahópurinn stækkar nánast í hverri viku.“
![](https://www.visir.is/i/F3AA5FA8C10C0EAA83F02E3BCBEA461FD43EF281E909559A26D7ED6BC0E28056_713x0.jpg)
![](https://www.visir.is/i/ABE6597552E42836DC28FC0718D7044C891F3188EAF757A2023BAADB5177247C_713x0.jpg)
Nýtir tækifærin í að kynnast nýjum stöðum
Jafet Máni Magnúsarson er 26 ára gamall fluþjónn og dagskrárgerðarmaður. „Ég byrjaði að vinna hjá Icelandair í fyrrasumar. Meðfram fluginu hefur ég unnið við dagskrárgerð, leiklist og að talsetja,“ segir Jafet sem heillast af mannauði fyrirtækisins.
„Þar vinnur fólk á öllum aldri með ríka þjónustulund og mikla þekkingu er lítur að ferðalögum og annarri menningu. Það gagnast mér afar vel enda hef ég mikinn áhuga á ferðalögum og nýti hvert tækifæri sem ég hef til að spóka mig um á nýjum stað. Þá ber helst að nefna einnig þá ferðalanga sem nýta þjónustuna. Í fluginu er fjölbreyttur hópur fólks að sækja ýmis erindi, hvort sem það eru fyrstu utanlandsferðir, fjölskylduferðir, skemmtiferðir eða vinnuerindi. Það er afar gaman að fá að vera liður í því og upplifa, oftast, fyrsta eða síðasta legg fólks í ferðalaginu.“
![](https://www.visir.is/i/42B0E6D624EF72130A80A28519777ADCA4AA7F70B06621ABDF749A7E5CBD1AC1_713x0.jpg)
![](https://www.visir.is/i/D55219FE6DE0B2B63C9DAB2E731E7CC4A715FE9941777C172F64F64285F65821_713x0.jpg)
Tíminn flýgur
Vilhjálmur Þór Davíðsson hóf störf sem flugþjónn hjá Icelandair árið 2012. „Það er svo mikið sem heillar við flugið, yndislegt samstarfsfólk og farþegar, enginn dagur er eins og tíminn flýgur alltaf áfram um borð,“ segir Vilhjálmur.
![](https://www.visir.is/i/B8794AD0B887144C55520E005B2EB4B620E7A4F733B95B65EDEC52870E7F8658_713x0.jpg)
![](https://www.visir.is/i/E529652338613FBCDBDC5067434C0A2BB98BD7C44C4162588AC6B4733AB21481_713x0.jpg)
Vellíðan og góð liðsheild mikilvæg
Hinn þrítugi Ethem Bajramaj hefur starfað sem flugþjónn hjá Play frá því í mars í fyrra. Aðspurður segist Ethem heillast af fjölbreyttu og skemmtilegu starfsumhverfi með góðum samstarfsfélögum og lýsir félaginu sem einni stórri fjölskyldu.
![](https://www.visir.is/i/0B5542321DB6ACE65D59B1CEFC2277805E10D822CBD90EE82229BABA6F50B9C9_713x0.jpg)
![](https://www.visir.is/i/618168B8B306D0FCB68312E74294E7433EEE28A4F05392D1ACBD4BA42D73191E_713x0.jpg)
„Þetta starf er svo allskonar, eins og ég!“
Ólafur Alex Kúld hefur starfað sem flugþjónn hjá Icelandair frá árinu 2015. Fyrir það hafði hann starfað við hin ýmsu þjónustustörf. „Ég starfaði sem þjónn á Kaffi Vest, Kex Hostel, Kaffi Flóru og var barþjónn eitt sumar á Seyðisfirði á Kaffi Láru,“ segir Ólafur og bætir við:
„Flugið átt alltaf hug minn frá því að ég fór í mína fyrstu flugferð sem barn.“
„Það sem heillar mig við þetta starf er fjölbreytnin, glæsibragurinn yfir starfinu, ríka öryggismenningin og að vera alltaf á ferðinni. Reynsla úr fyrri störfum nýtist einstaklega vel í að veita framúrskarandi þjónustu en það gleður mig mikið að gleðja aðra og tryggja öryggi í leiðinni,“ segir Ólafur.
![](https://www.visir.is/i/BBCCB199E5DCB53FC8ED8CF2F4B1C1F24F251B8AA6CE34325D302B05479C81EC_713x0.jpg)
![](https://www.visir.is/i/1BC34E3CF433EA5F37AC1E84AA17A8D22E7011ED867457F1C7A974C2433E62D5_713x0.jpg)