Yrsa gaf Sigurjóni og Erlingi nýjan Kulda Magnús Jochum Pálsson skrifar 10. ágúst 2023 15:47 Leikstjórinn Erlingur Óttar Thoroddsen, spennusagnahöfundurinn Yrsa Sigurðardóttir og kvikmyndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson. Vísir/Vilhelm Yrsa Sigurðardóttir afhenti Sigurjóni Sighvatssyni og leikstjóranum Erlingi Óttari Thoroddsen fyrstu eintökin af nýrri útgáfu af spennusögunni Kulda. Samnefnd bíómynd þeirra félaga, byggð á bókinni, kemur í bíó 1. september.
Spennusagan Kuldi kom fyrst út árið 2012 og varð ein söluhæsta bók ársins. Hún hefur verið þýdd á fjölda tungumála og hafa viðtökur erlendis verið afar lofsamlegar. Jyllands-Posten í Danmörku sagði hana minna á Stephen King upp á sitt allra besta. Í sögunni ræður ung stúlka sig til starfa á unglingaheimili á áttunda áratugnum og dvöl hennar þar umbyltir lífi hennar. Þegar ungur maður fer löngu síðar að rannsaka starfsemi heimilisins taka undarlegir atburðir að skekja tilveru hans og dóttur hans. Nú er búið að gera kvikmynd upp úr bókinni sem Erlingur Óttar Thoroddsen leikstýrir og kemur hún í kvikmyndahús 1. september næstkomandi. Bókin verður að bíómynd Líkt og í Ég man þig fer Jóhannes Haukur með aðalhlutverk í myndinni. Hann leikur þó ekki sömu persónu og í fyrri myndinni enda eru þær ekki beintengdar. Jóhannes Haukur Jóhannesson fer með eitt af aðalhlutverkunum í Kulda.Skjáskot Auk hans fara Elín Hall, Selma Björns, Halldóra Geirharðsdóttir, Sara Dögg Ásgeirsdóttir og Mikael Kaaber með stór hlutverk í myndinni. Þá leikur hin fjórtán ára Ólöf Halla Jóhannesdóttir burðarhlutverk í myndinni en hún er dóttir Jóhannesar Hauks og leikur sömuleiðis dóttur hans í myndinni. „Yrsa blandar saman ráðgátu við mögulega yfirnáttúrulega atburði. Við förum inn í smá hrollvekjufíling en ég myndi kalla myndina sálfræði-þriller frekar en hreinræktaða hrollvekju,“ sagði Erlingur Óttar aðspurður út í myndina. Erlingur Thoroddsen er rísandi stjarna sem hrollvekjuleikstjóri en mynd hans Rökkur sem kom út 2017 vakti mikla athygli bæði á Íslandi og erlendis. Sigurjón Sighvatsson framleiðir myndina en hann á að baki langan kvikmyndagerðarferil.
Bókmenntir Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Tengdar fréttir „Í lífinu er ekkert grand plan“ Sigurjón Sighvatsson er fluttur frá Hollywood og var nýlega verðlaunaður fyrir frumraun sína í leikstjórn. Hann er samt enn á fullu í kvikmyndaframleiðslu þó hann hafi tyllt sér aðeins í leikstjórastólinn. Í haust kemur hrollvekja eftir Yrsu í bíó og fleiri myndir eru handan við hornið. 30. júlí 2023 07:01 Rökkur fær verðlaun fyrir bestu kvikmyndatöku Íslenski spennutryllirinn Rökkur hefur hlotið verðlaun fyrir bestu kvikmyndatöku á kvikmyndahátíðinni California Independent Film Festival, sem haldin er um þessar mundir í tuttugasta skiptið í San Francisco. 15. september 2017 16:30 Erlingur mun leikstýra nýrri kvikmynd byggðri á verki Yrsu Síðasta kvikmynd sem byggð var á verkum Yrsu var hrollvekjan Ég man þig og var henni vel tekið í íslenskum kvikmyndahúsum. Nýjasta myndin mun einnig byggja á yfirskilvitlegum grunni og fékk bókin góða dóma árið 2012 þegar hún kom út. 8. júní 2017 12:27 Góður jarðvegur fyrir hrylling á Íslandi Það er furðulegt að Íslendingar skuli ekki framleiða meira af hrollvekjum, að mati ungs leikstjóra sem frumsýnir um helgina íslensk/amerísku hryllingsmyndina Child Eater. Myndin er framleidd í Bandaríkjunum en innblásin af íslenskri sagnahefð 27. október 2016 20:00 Mest lesið Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál „Fimm ár af allskonar og hamingjan er enn hér“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Fagnaði 35 árum í sólinni Lífið Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Lífið Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Lífið Fleiri fréttir Kynntu dagskrá RIFF 2024 Þakkaði fyrir sig á íslensku Shogun á spjöld sögunnar á Emmy verðlaunahátíðinni Snerting framlag Íslands til Óskarsins „Myndin byggir á minni eigin lífsreynslu“ Hlátur og grátur á Ljósvíkingum Ljósbrot valin besta norræna kvikmyndin Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr Svörtu söndum 2 Ældi næstum úr stressi á Cannes Myndaveisla: Rauður dregill og troðfullt hús á Ljósbroti Snerting hlaut eftirsótt verðlaun Snerting tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Jökull í Kaleo í Glæstar vonir Ljósbrot í forvali til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna Ólafur Darri og Hera Hilmars saman á skjánum í fyrsta sinn Lynch ólíklegur til að leikstýra aftur vegna Covidhræðslu Stórstjörnur í kvikmynd um fundinn í Höfða Sjá meira
„Í lífinu er ekkert grand plan“ Sigurjón Sighvatsson er fluttur frá Hollywood og var nýlega verðlaunaður fyrir frumraun sína í leikstjórn. Hann er samt enn á fullu í kvikmyndaframleiðslu þó hann hafi tyllt sér aðeins í leikstjórastólinn. Í haust kemur hrollvekja eftir Yrsu í bíó og fleiri myndir eru handan við hornið. 30. júlí 2023 07:01
Rökkur fær verðlaun fyrir bestu kvikmyndatöku Íslenski spennutryllirinn Rökkur hefur hlotið verðlaun fyrir bestu kvikmyndatöku á kvikmyndahátíðinni California Independent Film Festival, sem haldin er um þessar mundir í tuttugasta skiptið í San Francisco. 15. september 2017 16:30
Erlingur mun leikstýra nýrri kvikmynd byggðri á verki Yrsu Síðasta kvikmynd sem byggð var á verkum Yrsu var hrollvekjan Ég man þig og var henni vel tekið í íslenskum kvikmyndahúsum. Nýjasta myndin mun einnig byggja á yfirskilvitlegum grunni og fékk bókin góða dóma árið 2012 þegar hún kom út. 8. júní 2017 12:27
Góður jarðvegur fyrir hrylling á Íslandi Það er furðulegt að Íslendingar skuli ekki framleiða meira af hrollvekjum, að mati ungs leikstjóra sem frumsýnir um helgina íslensk/amerísku hryllingsmyndina Child Eater. Myndin er framleidd í Bandaríkjunum en innblásin af íslenskri sagnahefð 27. október 2016 20:00