„Við viljum samtal um þetta en það virðist ekki vera í boði“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 2. júlí 2023 22:39 Kjartan Páll Sveinsson, formaður Strandveiðifélags Íslands, segir strandveiðimenn ekki ætla að taka stöðvun strandveiðitímabilsins þegjandi og hljóðalaust. Aðsent Formaður Strandveiðifélags Íslands segir framkomu yfirvalda í garð strandveiðimanna óásættanlega. Auka þurfi kvótann sem sé algjör hungurlús og gera breytingar á kerfinu til framtíðar. Hann furðar sig á því að matvælaráðherra setji sig upp á móti umhverfisvænum veiðum.
Strandveiðifélag Íslands fundaði með strandveiðisjómönnum á Norðausturlandi og Austfjörðum í dag. Fundirnir voru haldnir í ljósi þess bráðavanda sem liggur fyrir í strandveiðikerfinu að um áttatíu prósent aflans er komið á land og því liggur fyrir að veiðarnar verði stöðvaðar í byrjun júlí. Stöðvunin er endurtekin frá því á síðustu vertíð og bitnar mest á C-svæðinu, milli Þingeyjarsveitar og Djúpavogshrepps, þar sem almennilegur fiskur kemur ekki þangað fyrr en í júlí og ágúst. Þurfi lítið upp á til að gera þetta mannsæmandi Kjartan Sveinsson, formaður Strandveiðifélags Íslands, segir ekki hægt að bjóða strandveiðimönnum upp á að helmingur atvinnu þeirra sé tekinn í burtu annað árið í röð. Það þurfi lítið til að laga kerfið svo það verði mannsæmandi. Strandveiðimenn funda um stöðuna á Neskaupstað.Aðsent „Þetta verður í annað skiptið á tveimur árum sem það er stöðvað löngu áður en vertíðin á að stöðvast. Það er eiginlega ekki hægt að bjóða okkur upp á svona lagað,“ segir Kjartan Sveinsson um stöðvun strandveiða sem verður í byrjun júlí miðað við gang veiða. Ástæðan fyrir stöðvuninni er einfaldlega sú að kvótinn er að klárast. „Potturinn er að klárast og vandamálið er að hann er alltof lítill. Þetta er bara hungurlús sem við fáum, ekki nema eitt til tvö prósent af heildarkvóta í íslenskri lögsögu þannig við erum að tala um rosalega lítið brot af þeim fiski sem er veiddur,“ segir Kjartan. „Það þarf svo rosalega lítið upp á til að laga þetta og gera þetta mannsæmandi,“ segir hann. Bryggjan á Neskaupstað er full af strandveiðibátum sem munu kannski ekkert veiða í ár.Aðsent Þurfi að bæta í pottinn Kjartan segir að bæta þurfi í pottinn og finna langtímalausn svo strandveiðimenn landsins lifi ekki við óvissu. Hvað þarf að gera? „Það þarf að bæta í pottinn og það í ár þannig við getum klárað vertíðina með sæmd. Þannig fólk sem er búið að skuldsetja sig til að kaupa báta fari ekki á hausinn og missi ekki bátana sína. Þetta er ófremdarástand,“ segir hann. „Svo þurfa stjórnvöld að finna einhverja langtímalausn á þessu. Eina lausnin sem mundi gagnast væri að taka stöðvunarheimildina út þannig við fáum bara þessa daga og þar við situr.“ Ráðuneytið haldi strandveiðimönnum í lausu lofti Strandveiðimenn funduðu í dag á Neskaupstað, Þórshöfn og Borgarfirði Eystri sem eru á C-svæði sem nær yfir Norðausturland og Austfirði en stöðvunin bitnar verst á því svæði þar sem fiskurinn er í raun ekki enn kominn þangað. „Fiskurinn mætir þangað sirka í júlí,“ segir Kjartan. Fundað með strandveiðimönnum í Þórshöfn vegna stöðvunar strandveiðitímabilsins.Aðsent Þeir koma þá verst út úr þessu? „Já, þeir koma verst út úr þessu en allir strandveiðisjómenn koma illa út úr þessu. Það er verið að taka nánast helminginn af okkar atvinnu,“ segir Kjartan. Kjartan segir strandveiðimenn hafa bent ráðuneytinu á lausnir við ástandinu en þar sé ekkert hlustað. „Við erum búin að vera að benda á alls kyns leiðir til að leysa þetta í ráðuneytinu en þau virðast ekkert hlusta á okkur. Ég veit ekki hvort það er skilningsleysi eða skeytingarleysi en þau virðast allavega ekki hlusta á þær lausnir sem við komum með og ekki einu sinni ræða þær,“ segir Kjartan. „Við viljum samtal um þetta en það virðist ekki vera í boði.“ Höfnin á Borgarfirði Eystri.Aðsent Meingallað frumvarp sem fór ekki í gegn Matvælaráðherra lagði fram frumvarp sem hefði gjörbreytt fyrirkomulagi vertíðarinnar að sögn Kjartans. Frumvarpið hafi átti að bæta hag C-svæðis en framkvæmd þess hafi verið hrikaleg og svo komst það á endanum ekki í gegn. „Við verðum að vekja athygli á framkomunni í okkar garð af því þegar vertíðin byrjaði vissum við ekkert hvernig átti að spilast út úr henni,“ segir Kjartan. Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, er ekki allra. Hún stöðvaði nýlega hvalveiðar tímabundið degi fyrir upphafi tímabilsins sem vakti mikla reiði hvalveiðimanna og mikinn fögnuð margra annarra.Vísir/Vilhelm „Matvælaráðherra lagði til frumvarp til þess að bæta hlut C-svæðis svo það færi ekki jafn illa út úr því eins og í fyrra. Það er all gott og gilt en það var svo hrikalega illa að því staðið að það hefði að ákveðnu leyti bitnað á A-svæði,“ segir hann og bætir við „það gengur ekki að taka úr einum vasa til að setja í hinn.“ „Hugmyndin var góð og gild að rétt hlut C-svæðis en framkvæmdin var alveg út úr kortinu og svo fór þetta ekki einu sinni í gegn,“ segir Kjartan. „En við vissum það ekki vegna þess að þegar vertíðin byrjaði 2. maí þá var frumvarpið ekki komið í gegn en matvælaráðuneytið sagði að þau áskldu sér rétt til að breyta þessu eftir á ef þetta kæmist í gegn í maí,“ segir hann um óvissuna. „Við vissum ekkert hvernig vertíðin ætti að byrja og núna vitum við ekkert hvernig vertíðin á að enda heldur,“ segir hann. Strandveiðikerfið brotið og ófullnægjandi Strandveiðimenn halda áfram að veiða út vertíðina þar til hún klárast en binda vonir við að matvælaráðherra bæti ástandið næsta vetur en matvælaráðherra hefur lýst honum sem miklum frumvarpavetri. „Svandís hefur sagt að næsti vetur verði mikill frumvarpavetur í sjávarútvegsmálum þannig það er okkur kappsmál að sýna hversu brotið og ófullnægjandi strandveiðikerfið er akkúrat núna. Að hún verði í rauninni að leggja áherslu á að bæta það,“ segir hann. „Það er mjög skrítið að ráðherra sem sitji í þessum stól fyrir hönd Vinstri grænna að hún skili ekki vilja styrkja fiskveiðar sem eru bæði umhverfisvænar og félagslegar ábyrgar. Maður hefði haldið að það væri augljóst að hún myndi leggja kapp á að styðja þær veiðar,“ sagði Kjartan að lokum. Saltfiskur á Borgarfirði Eystri.Aðsent
Langanesbyggð Fjallabyggð Múlaþing Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Vinstri græn Sjávarútvegur Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira