Gremja hafi kraumað undir niðri í ríkisstjórninni Máni Snær Þorláksson og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa 20. júní 2023 21:22 Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir að mikil gremja hafi kraumað niðri undir niðri í ríkisstjórninni. Vísir/Vilhelm/Egill Matvælaráðherra telur ákvörðun hennar um að stöðva hvalveiðar tímabundið ekki stofna stjórnarsamstarfinu í hættu. Formaður Starfsgreinasambandsins segir ákvörðun ráðherra til skammar og reiðarslag fyrir starfsfólk Hvals Hf.
Óhætt er að segja að það ríki ekki einhugur um málið innan ríkisstjórnarinnar. Fréttastofa ræddi við nokkra þingmenn Sjálfstæðisflokksins í dag sem sögðu töluverða reiði ríkja vegna málsins. Þá sögðust þeir vissir um að þessi ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra muni hafa einhver áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið. Fjallað var ítarlega um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði þá í samtali við RÚV í dag að hann væri ósammála ákvörðun Svandísar. Hann telji að meðalhófsreglunni hafi ekki verið fylgt. Þá hefur tímasetningu ákvörðunarinnar verið velt upp, það er hvort hún sé einhvers konar svar við tali formanns Sjálfstæðisflokksins sem fór hörðum orðum um útlendingamál á Bessastöðum í gær. Ákvörðunin sé ekki svar við orðum Bjarna Svandís segir þó að ákvörðunin sé að engu leyti svar við orðum Bjarna. „Nei, þetta er ekki þannig ákvörðun. Hún er efnisleg, málefnaleg og fagleg,“ segir hún. Það væri ekki mjög skynsamlegt að taka ákvörðun af þessari stærðargráðu sem byggðist á öðru eins og því. „Sem svar við einhverri ákveðinni pólitískri stöðu. Þetta snýst um að taka faglega ákvörðun sem byggist á faglegum grunni. Og það er það sem ég er að gera.“ Þá fullyrðir hún að stjórnarsamstarfið sé ekki í hættu vegna ákvörðunarinnar. Ljóst að ákvörðunin varði marga Hefja átti hvalveiðar á morgun og er fyrirvarinn því stuttur. Svandís segist geta skilið stöðu þeirra sem höfðu gert ráðstafanir fyrir sumarið í tengslum við veiðarnar. „Að sjálfsögðu, ég meina þetta er stór ákvörðun og hún varðar marga. Það liggur algjörlega fyrir,“ segir hún. „Það er hins vegar mitt hlutverk og mitt verkefni að afla gagna um þessi mál, auka gagnsæjið, tryggja það að mínar ákvarðanir byggi á bestu mögulegu þekkingu, bestu mögulegu upplýsingum, lögmætum grunni og svo framvegis. Það er þannig sem þessi ákvörðun er fengin.“ Ljóst er að þessi ákvörðun hefur áhrif á marga, varðandi það hver eigi að sjá um þann hóp segir Svandís: „Það er bara alltaf þannig að bein áhrif eru kannski það sem kemur fyrst upp í hugann, síðan eru mjög fjölþætt óbein áhrif og það er alveg ljóst að það eru margir í samfélaginu sem verða fyrir áhrifum af þessari ákvörðun og það verða næstu vikur að leiða í ljós hvernig spilast úr því.“ Gríðarleg áhrif á starfsfólk Fréttastofa reyndi í dag að ná tali af Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, í dag en ekki var hægt að verða við því. Þá var líka reynt að ná í Guðrúnu Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra og aðra ráðherra Sjálfstæðisflokksins en það gekk ekki eftir. Einnig var reynt að ná í Kristján Loftsson hjá Hvali hf. í dag en það bar ekki árangur. Það náðist í nokkra starfsmenn Hvals hf. í síma sem treystu sér ekki í viðtal. Þeir sögðu ákvörðunina hafa gríðarleg áhrif á sig. Margir hafi verið búnir að gera ráðstafanir fyrir sumarið. Einn sagðist sjá fram á gjaldþrot og annar sagðist vera búinn að leigja út húsnæðið sitt því hann ætlaði á veiðar í allt sumar. Reiður og sorgmæddur Vilhjálmur Birgison, formaður Starfsgreinasambandsins, er harðorður í garð Svandísar vegna ákvörðunar hennar í dag. Hann segist reiður og sorgmæddur fyrir hönd þeirra 150 starfsmanna sem voru að búa sig undir vertíðina. „Ég veit fyrir víst að það voru fjörutíu mættir upp í hvalstöð í dag, byrjaðir að vinna. Þannig þetta er algjört reiðarslag fyrir þetta fólk sem var að búa sig undir það að geta aflað sér og sínum fjölskyldum lífsviðurværi næstu þrjá til fjóra mánuðina.“ Hann segir starfsfólkinu líða illa. „Menn náttúrulega eru bara í nettu sjokki og svona vinnubrögð af hálfu matvælaráðherra að koma með svona yfirlýsingar fimm mínútum áður en vertíðin er að hefjast er að mínum dómi henni til ævarandi skammar.“ Þá trúir Vilhjálmur ekki öðru en að þessi ákvörðun muni leiða til stjórnarslita. Eins og blaðra hafi sprungið Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir að það sé augljóst að einhver gremja hafi kraumað undir niðri í ríkisstjórninni. „Þau hafa tengst útlendingamálum en líka bara því hversu ólíkir flokkar eru saman í þessari ríkisstjórn. Forystumennirnir hafa náð að halda ágreiningi í skefjum með svona nánu samstarfi sín á milli en í gær, við ráðherraskiptin, þá er eins og einhver blaðra springi og í ljós komi þessi ágreiningur sem hefur verið ansi mikill og skeytin hafa gengið á milli.“ Hann er þó ekki sannfærður um að ríkisstjórnin springi: „Ég er þó ekki viss um að það verði stjórnarslit og ekki endilega þá núna en þetta bendir hins vegar til þess að titringurinn muni aukast í samstarfinu og að það þurfi minna til, til þess að þessi ríkisstjórn falli heldur en við héldum kannski fyrir gærdaginn. Sem fyrr segir sagði Svandís í dag að ríkisstjórnin væri ekki í hættu. Eiríkur bendir þó á að það segi ekki allt. „Forystumenn ríkisstjórnar segja á öllum tímum að ríkisstjórn sé ekki í hættu þar til að hún springur. Það er nú bara „standard“ svar því um leið og menn gæfu aðdrátt um eitthvað annað, þá er nú fjandinn laus.“
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Hvalveiðar Vinstri græn Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Innlent „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Innlent Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Erlent „Þetta var rétt ákvörðun“ Innlent Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Litlar breytingar þrátt fyrir lagabreytinguna Pawel leggur frumvarp Gríms um netsölu áfengis fram á ný Um 30 manns innlyksa eftir skriðu sem fór næstum á rútu Nafnið villandi og ekki lýsandi fyrir heilkennið Annað innbrotið á árinu: „Það var svo mikið blóð“ Sautján voru handteknir í aðgerðum lögreglu Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Rokið, haustlitir og lauf út um allar trissur Fjöldi sjálfsvíga svipaður og fyrri ár Björn Leví telur einsýnt að Guðmundur Ingi hafi verið beittur ofbeldi Tilkynningar um heimilisofbeldi milli foreldra og barna tvöfaldast 350 milljóna tekjur Þingvalla í húfi vegna náttúrupassa Dapurlegt að móðir hafi barist í sjö ár fyrir sjálfsögðum rétti Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Bókun 35 og óveður setur strik í reikninginn Pallborðið í heild sinni: Klukkan tifar og staðan viðkvæm Sjá meira