Forsetinn fyrrverandi var nýverið ákærður vegna leynilegra skjala sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu til Flórída. Hann neitaði að afhenda Þjóðskjalasafni Bandaríkjanna skjölin, og önnur opinber gögn sem hann átti að afhenda samkvæmt lögum. Hann neitaði einnig að afhenda skjölin þegar honum var stefnt.
Þá er hann sakaður um að hafa reynt að leyna opinberum gögnum í stað þess að skila þeim.
Sjá einnig: Hafnaði ráðleggingum og laug að ráðgjöfum um leyniskjölin
Saksóknarar hafa komið höndum yfir upptöku af Trump tala við tvo rithöfunda um sumarið 2021. Þá sýndi hann þeim skjal sem hann sagði þá að væri leynilegt og hefði verið gert af Varnarmálaráðuneytinu. Á upptökunni viðurkenndi hann einnig að hafa ekki svipt leyndinni af skjalinu, eins og hann hefur lengi haldið fram að hann hafi gert.
Sjá einnig: Viðurkenndi á upptöku að gögnin væru leynileg
Trump var í viðtali við Brett Baier hjá Fox í gær þar sem hann þvertók fyrir að skjalið hefði verið leynilegt. Þess í tað hefði það verið blaðaúrklippa. Þá hélt hann því fram að orð hans á upptökunni hefðu einnig snúist um blaðaúrklippur en ekki leynileg skjöl.
A preview of my 2 part interview with former President Trump. #foxnews pic.twitter.com/Fa3M0skA9p
— Bret Baier (@BretBaier) June 19, 2023
Í viðtalinu virðist Trump einnig viðurkenna að hafa ekki fylgt stefnu Dómsmálaráðuneytisins og segist hann ekki hafa skilað skjölunum, því hann hafi þurft að aðskilja þau frá einkamunum hans.
„Ég var með kassa. Ég vil fara í gegnum þá og taka einkamunina mína úr þeim,“ sagði Trump. Þá sagðist hann hafa verið mjög upptekinn.
Ummæli Trumps í viðtalinu eru þau umfangsmestu sem hann hefur látið frá sér síðan baráttan um opinberu gögnin hófst. Samkvæmt frétt New York Times skipaði dómari Trump í gær að tjá sig ekki opinberlega um ný sönnunargögn sem verjendur hans hafa fengið aðgang að og virðist sem Trump ekki brotið gegn þeirri skipun.
Aileen M. Cannon, dómari sem er yfir málinu gegn Trump, sagði í dag að réttarhöldin gegn forsetanum fyrrverandi ættu að hefjast þann 14. ágúst. Líklegt þykir að það muni tefjast vegna deilna sem þarf að úrskurða um áður en réttarhöldin geta hafist. Þar á meðal þarf að segja til um meðferð leynilegra gagna í réttarhöldunum.
Cannon, sem var tilnefnd í embætti af Trump, hefur áður verið gagnrýnd fyrir að hægja verulega á rannsókn Dómsmálaráðuneytisins.