Aðalsteinn hættir tveimur árum á undan áætlun Kristinn Haukur Guðnason skrifar 31. maí 2023 14:42 Aðalsteinn lýkur störfum frá og með morgundeginum. Aðalsteinn Leifsson lætur af embætti ríkissáttasemjara frá og með morgundeginum, 1. júní. Embættið verður auglýst til umsóknar á næstu dögum. Hann segist hafa átt frumkvæðið að því að hætta sjálfur. Aðalsteinn var skipaður ríkissáttasemjari til fimm ára í febrúar árið 2020. Aðalsteinn hefur gegnt embættinu frá 1. apríl árið 2020. Á vef stjórnarráðsins er sagt að Aðalsteinn láti af störfum að eigin ósk. Elísabet Inga ræddi við Aðalstein Leifsson tveimur tímum eftir að tilkynnt var um starfslokin óvæntu. Ástráður Haraldsson, héraðsdómari, verður tímabundið settur í embættið frá og með 1. júní. Eins og flestir muna tók Ástráður við sem sáttasemjari í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins þegar deilan var komin í hnút. Ástráður verður settur tímabundið í embætti ríkissáttasemjara.Vísir/Vilhelm Úrskurðaði Landsréttur að Ríkissáttasemjari hefði ekki heimild til þess að krefjast félagatals Eflingar vegna miðlunartillögu sem Aðalsteinn lagði fram. En samninganefnd Eflingar lagðist alfarið gegn þeirri miðlunartillögu. Undir stjórn Ástráðs náðu Efling og SA skammtímakjarasamningi. Aðalsteinn segir að undanfarin ár hafi verið lærdómsrík og skemmtileg í færslu sem hann skrifaði á Facebook rétt eftir að tilkynnt var um starfslok hans. Myndin sem Aðalsteinn birtir á vefsíðu sinni.Aðalsteinn Leifsson „Svo það sé sagt, þá átti ég sjálfur frumkvæði að því að hætta og ég kveð þetta starf sáttur og barmafullur þakklætis fyrir samstarfið og óska öllum sem taka að sér það erfiða hlutverk að semja um kaup og kjör, beggja megin borðsins, hins allra besta,“ skrifaði hann. Hann ætli að vera til staðar fyrir settan ríkissáttasemjara til þess að tryggja að allir boltar haldist á lofti og trygg samfella verði í þeirri þjónustu sem embættið veitir. Færsluna í heild má sjá að neðan. „Anda inn...anda út“ þessi mynd varð til í samstarfi mínu við Sigurbjörgu tengdamömmu á Ísafirði sem er að kenna mér útsaum. Ég ætla að skilja myndina eftir á kaffistofunni í Karphúsinu núna þegar ég hætti í embætti ríkissáttasemjara. Undanfarin ár hafa verið lærdómsrík og skemmtileg og ég hef kynnst frábæru fólki um allt land í samninganefndum verkalýðshreyfingarinnar og launagreiðenda og okkur hefur tekist í sameiningu að finna lendingu og lausnir, þó leiðin að lausninni hafi stundum verið snúin og brött og ytri aðstæður hafi verið krefjandi. Ég er sérstaklega ánægður með að hafa í samstarfi við Elísabetu, samstarfskonu mína, aðstoðarsáttasemjarana og fleira gott fólk náð að vinna að ýmsum þróunarverkefnum sem nýtast aðilum vinnumarkaðarins og samningaferlinu, eins og námsstefnum í samningagerð um allt land, gerð gagnagrunns með öllum gildandi kjarasamningum, breytt verklag í sáttamiðlun, menntun sáttamiðlara, að færa samningaviðræður út á land í nærumhverfið og fleira sem kom í framhaldi af góðum verkum fyrri ríkissáttasemjara og lifir vonandi lifir áfram og þróast með nýju fólki. Ég verð til staðar fyrir settan ríkissáttasemjara til að tryggja að „allir boltar haldist á lofti“ og það verði trygg samfella í þeirri þjónustu sem embættið veitir. Svo það sé sagt, þá átti ég sjálfur frumkvæði að því að hætta og ég kveð þetta starf sáttur og barmafullur þakklætis fyrir samstarfið og óska öllum sem taka að sér það erfiða hlutverk að semja um kaup og kjör, beggja megin borðsins, hins allra besta. PS! Sigurbjörg, vonandi verður núna tími fyrir fleiri ferðir vestur og ég get haldið áfram námi með nál og java 🙂 Kjaramál Stjórnsýsla Vistaskipti Kjaraviðræður 2022-23 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Sjá meira
Aðalsteinn hefur gegnt embættinu frá 1. apríl árið 2020. Á vef stjórnarráðsins er sagt að Aðalsteinn láti af störfum að eigin ósk. Elísabet Inga ræddi við Aðalstein Leifsson tveimur tímum eftir að tilkynnt var um starfslokin óvæntu. Ástráður Haraldsson, héraðsdómari, verður tímabundið settur í embættið frá og með 1. júní. Eins og flestir muna tók Ástráður við sem sáttasemjari í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins þegar deilan var komin í hnút. Ástráður verður settur tímabundið í embætti ríkissáttasemjara.Vísir/Vilhelm Úrskurðaði Landsréttur að Ríkissáttasemjari hefði ekki heimild til þess að krefjast félagatals Eflingar vegna miðlunartillögu sem Aðalsteinn lagði fram. En samninganefnd Eflingar lagðist alfarið gegn þeirri miðlunartillögu. Undir stjórn Ástráðs náðu Efling og SA skammtímakjarasamningi. Aðalsteinn segir að undanfarin ár hafi verið lærdómsrík og skemmtileg í færslu sem hann skrifaði á Facebook rétt eftir að tilkynnt var um starfslok hans. Myndin sem Aðalsteinn birtir á vefsíðu sinni.Aðalsteinn Leifsson „Svo það sé sagt, þá átti ég sjálfur frumkvæði að því að hætta og ég kveð þetta starf sáttur og barmafullur þakklætis fyrir samstarfið og óska öllum sem taka að sér það erfiða hlutverk að semja um kaup og kjör, beggja megin borðsins, hins allra besta,“ skrifaði hann. Hann ætli að vera til staðar fyrir settan ríkissáttasemjara til þess að tryggja að allir boltar haldist á lofti og trygg samfella verði í þeirri þjónustu sem embættið veitir. Færsluna í heild má sjá að neðan. „Anda inn...anda út“ þessi mynd varð til í samstarfi mínu við Sigurbjörgu tengdamömmu á Ísafirði sem er að kenna mér útsaum. Ég ætla að skilja myndina eftir á kaffistofunni í Karphúsinu núna þegar ég hætti í embætti ríkissáttasemjara. Undanfarin ár hafa verið lærdómsrík og skemmtileg og ég hef kynnst frábæru fólki um allt land í samninganefndum verkalýðshreyfingarinnar og launagreiðenda og okkur hefur tekist í sameiningu að finna lendingu og lausnir, þó leiðin að lausninni hafi stundum verið snúin og brött og ytri aðstæður hafi verið krefjandi. Ég er sérstaklega ánægður með að hafa í samstarfi við Elísabetu, samstarfskonu mína, aðstoðarsáttasemjarana og fleira gott fólk náð að vinna að ýmsum þróunarverkefnum sem nýtast aðilum vinnumarkaðarins og samningaferlinu, eins og námsstefnum í samningagerð um allt land, gerð gagnagrunns með öllum gildandi kjarasamningum, breytt verklag í sáttamiðlun, menntun sáttamiðlara, að færa samningaviðræður út á land í nærumhverfið og fleira sem kom í framhaldi af góðum verkum fyrri ríkissáttasemjara og lifir vonandi lifir áfram og þróast með nýju fólki. Ég verð til staðar fyrir settan ríkissáttasemjara til að tryggja að „allir boltar haldist á lofti“ og það verði trygg samfella í þeirri þjónustu sem embættið veitir. Svo það sé sagt, þá átti ég sjálfur frumkvæði að því að hætta og ég kveð þetta starf sáttur og barmafullur þakklætis fyrir samstarfið og óska öllum sem taka að sér það erfiða hlutverk að semja um kaup og kjör, beggja megin borðsins, hins allra besta. PS! Sigurbjörg, vonandi verður núna tími fyrir fleiri ferðir vestur og ég get haldið áfram námi með nál og java 🙂
„Anda inn...anda út“ þessi mynd varð til í samstarfi mínu við Sigurbjörgu tengdamömmu á Ísafirði sem er að kenna mér útsaum. Ég ætla að skilja myndina eftir á kaffistofunni í Karphúsinu núna þegar ég hætti í embætti ríkissáttasemjara. Undanfarin ár hafa verið lærdómsrík og skemmtileg og ég hef kynnst frábæru fólki um allt land í samninganefndum verkalýðshreyfingarinnar og launagreiðenda og okkur hefur tekist í sameiningu að finna lendingu og lausnir, þó leiðin að lausninni hafi stundum verið snúin og brött og ytri aðstæður hafi verið krefjandi. Ég er sérstaklega ánægður með að hafa í samstarfi við Elísabetu, samstarfskonu mína, aðstoðarsáttasemjarana og fleira gott fólk náð að vinna að ýmsum þróunarverkefnum sem nýtast aðilum vinnumarkaðarins og samningaferlinu, eins og námsstefnum í samningagerð um allt land, gerð gagnagrunns með öllum gildandi kjarasamningum, breytt verklag í sáttamiðlun, menntun sáttamiðlara, að færa samningaviðræður út á land í nærumhverfið og fleira sem kom í framhaldi af góðum verkum fyrri ríkissáttasemjara og lifir vonandi lifir áfram og þróast með nýju fólki. Ég verð til staðar fyrir settan ríkissáttasemjara til að tryggja að „allir boltar haldist á lofti“ og það verði trygg samfella í þeirri þjónustu sem embættið veitir. Svo það sé sagt, þá átti ég sjálfur frumkvæði að því að hætta og ég kveð þetta starf sáttur og barmafullur þakklætis fyrir samstarfið og óska öllum sem taka að sér það erfiða hlutverk að semja um kaup og kjör, beggja megin borðsins, hins allra besta. PS! Sigurbjörg, vonandi verður núna tími fyrir fleiri ferðir vestur og ég get haldið áfram námi með nál og java 🙂
Kjaramál Stjórnsýsla Vistaskipti Kjaraviðræður 2022-23 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Sjá meira