Veður

Glittir í sumarið um mánaða­mót

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Það bíða allir eftir sumrinu, eins og Bubbi söng í laginu Aldrei fór ég suður.
Það bíða allir eftir sumrinu, eins og Bubbi söng í laginu Aldrei fór ég suður. Vísir/Vilhelm

Viðvaranir hafa verið gefnar út vegna storms sem mun ganga yfir landið á morgun. Áfram mun veðrinu fylgja snjór eða krapi, líkt og féll um helgina. Veðurfræðingur segir hér um að ræða framhald af vetrinum en glitta fari í sumarið um mánaðamót.

Veðrið alls staðar á landinu, nema á Austurlandi, var vægast sagt leiðinlegt í gær. Í höfuðborginni skiptust á skin og skúrir og var éljagangur þar að auki um hríð. Svo virðist sem veðurguðirnir ætli ekki að snúa þessu við í bráð. Gular viðvaranir hafa nú verið gefnar út á öllu landinu, utan Austurlands, Austfjarða og Suðausturlands á morgun.

„Þetta eru svona dreggjar af vetrinum. Það eru kaldir pokar sem leynast hér og þar á norðurhjaranum og það er eins og þeir stefni allir til okkar,“ sagði Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

„Þessi tíð heldur áfram og við erum að fá yfir okkur aðra svona lægð með köldu lofti úr vestri á morgun og það hvessir dálítið með henni,“ segir Einar. 

„Síðdegis á morgun þá gerir vind af stormstyrk hér á Vesturlandi, milli klukkan tvö og sex, eitthvað svoleiðis.“

Næstu dagar og fram yfir næstu helgi verði veðrið svipað. Það sé þó ekki langt í sumarið.

„Loftið hér fyrir sunnan okkur er farið að hlýna. Það er farið að bera keim af sumri og eftir því sem nær dregur júnímánuði, því mun meiri líkur á því að eitthvað af þessu hlýja lofti komist til okkar,“ segir Einar. 

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að sumarið sé rétt handan við hornið.Vísir

„Í lok maí og byrjun júní sjáum við breytingar, þar sem spáð er háþrýstisvæði hér suður og austur af landinu. Með þeirri stöðu veðurkerfanna berst til okkar mildara loft og þá koma klárlega sumarlegir dagar.“

Og þó vorið hafi verið kalt sé nóg af hlýindum í vændum.

„Mælingar leiða það mjög skýrt í ljós á síðustu 20-30 árum að sumarið er að lengjast þeim megin, það er að segja að september er hlýrri en áður og eins og var til dæmis í fyrra voru eiginlega bestu dagar sumarsins í byrjun september.“


Tengdar fréttir

Gular við­varanir á nær öllu landinu vegna hvass­viðris

Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á nær öllu landinu vegna suðvestan hvassviðris eða storms sem gengur yfir landið á morgun. Austurland virðist að mestu sleppa við hvassviðrið og eru ekki viðvaranir í gildi þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×