Það var Marcus Rashford sem skoraði markið sem skildi liðin að í 1-0 sigri Manchester United sem hafði spilað þrjá leiki í röð fyrir þessa viðureign án þess að ná að fara með sigur af hólmi.
Newcastle United gjörsigraði West Ham United, 5-1, í hinum leik kvöldsins í deildinni á London-leikvangnum.
Callum Wilson og Jolinton skoruðu tvö mörk hvor í leiknum og Alexander Isak bætti fimmta marki gestanna við. Kurt Zouma lagaði stöðuna fyrir West Ham United.
Newcastle United og Manchester United eru áfram jöfn að stigum í þriðja til fjórða sæti deildarinnar en liðin hafa hvort um sig 53 stig eftir 28 leiki.